Menntun stúlkna í Afganistan ekki álitin fjárfesting

Heim / Fréttir / Menntun stúlkna í Afganistan ekki álitin fjárfesting

malthingÞann 10. desember fór fram málþing UNICEF og UN Women á Íslandi um menntun og valdeflingu kvenna og stúlkna í Afganistan.

Málþingið var haldið í samstarfi við forsætis-, utanríkis- og velferðarráðuneytið og á alþjóðlegum mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna sem er í dag.

Dagurinn markar einnig lok 16 daga átaksins gegn kynbundnu ofbeldi. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, flutti ávarp við upphaf málþingsins og benti meðal annars á að eftir langan tíma með sífelldum stríðsrekstri þyrftu raddir kvenna að heyrast við uppbyggingu landsins. Það ætti ekki síst við á æðstu stöðum.

„Það skiptir máli að konur komi að friðarferlum og að reynsla þeirra nýtist til að byggja nærsamfélagið upp aftur. Til þess að slíkt sé mögulegt er mikilvægt að konur hafi nauðsynleg verkfæri til að takast á við svo risavaxin verkefni. Þar skiptir læsi og önnur menntun miklu máli því öll menntun eykur til muna aðgang að völdum og áhrifum í samfélaginu,“ sagði hún.

Stúlkur mæta margs konar hindrunum.

Lilja Hjartardóttir, stjórnmálafræðingur sem jafnframt stýrði fundinum, gaf sögulegt yfirlit yfir bakgrunn átakanna í landinu. Hún benti einnig meðal annars á að samkvæmt könnun meðal Afgana væru helstu vandamál landsins að þeirra mati óöryggi, spilling, atvinnuleysi, slæmur efnahagur, skortur á aðgengi að menntun og heilsugæslu, skortur á rafmagni, drykkjarhæfu vatni og vegum – og ólæsi.
Razia Stanikzai, sérfræðingur og yfirmaður í afganska menntamálaráðuneytinu, talaði við fundargesti beint frá Kabúl í gegnum Skype. Hún hefur áralanga reynslu af menntamálum í Afganistan. Razia undirstrikaði að mikill árangur hefði náðst í menntamálum í landinu og af því væri hún stolt. Nemendum hefði fjölgað mikið og nærri 40% þeirra væru stúlkur. Betur mætti hins vegar ef duga skyldi. Fjölmargt hindraði enn aðgengi stúlkna að menntun, svo sem skortur á öryggi. Auk þess væri sem dæmi skortur á gagnfræðaskólum fyrir stúlkur og skortur á kvenkyns kennurum. Razia þakkaði sérstaklega fyrir auðsýndan áhuga á menntun stúlkna í Afganistan og fyrir framlag íslenskra stjórnvalda.

Menntun stúlkna ekki álitin fjárfesting.

Fatima Hossaini, sérfræðingur í réttindum stúlkna með áherslu á þvinguð hjónabönd, benti á að Afganistan væri einn versti staður í heimi til að vera kona. Fatima er frá Afganistan en býr á Íslandi í dag. Hún lauk BA-prófi í lögum og stjórnmálafræði frá Háskólanum í Kabúl og hefur lengi verið virk í kvennabaráttu í Afganistan. Hún stundaði nám við Jafnréttisskóla SÞ hér á landi og hefur meðal annars unnið að því að koma upp kynjafræði við háskólann sinn í Kabúl.

Fatima undirstrikaði þau áhrif sem snemmbúnar og þvingaðar giftingar ungra stúlkna hafa. Stúlkur fara þá oft ekki í skóla, enda eru þær fyrst og fremst álitnar mæður og eiginkonur og menntun þeirra ekki talin fjárfesting. Hún benti einnig meðal annars á að hækka þyrfti lágsmarksaldur hjónabanda og kvóta vantaði á kvenkyns háskólanemendur í Afganistan.

Fatima Hossaini ræddi við Arnhildi Hálfdanardóttur, fréttamann í Speglinum, eftir málþingið. Tryggja þyrfti aðgang stúlkna að grunnskólum og gagnfræðaskólum í öllum héruðum í Afganistan.Styrkur íslenskra stjórnvalda til UNICEF í Afganistan.

Málþingið var haldið í tengslum við níu milljóna króna styrk utanríkis-, velferðar- og forsætisráðuneytanna til UNICEF í Afganistan fyrir menntun stúlkna. Framlagið er hluti af verkefni ráðuneytanna þriggja sem hlaut styrk úr Framkvæmdasjóði jafnréttismála á síðastliðnu ári.Það hefur annars vegar að markmiði að styðja við menntun og valdeflingu stúlkna og kvenna í Afganistan og hins vegar að kynna stöðu stúlkna í landinu og mikilvægi menntunar fyrir valdeflingu þeirra.

Related Posts