Meira en 19 milljónir Jemena þurfa á neyðaraðstoð að halda

Heim / Fréttir / Meira en 19 milljónir Jemena þurfa á neyðaraðstoð að halda

Ónýtt heilbrigðistkerfi hefur áhrif á líf 400 barnshafandi og mjólkandi kvenna og 9.600 barna.

Harðnandi átök í Jemen frá upphafi árs hafa haft gríðarleg áhrif á líf fólks í landinu. Ísraelar gerðu sprengjuárásir á Jemen í janúar og Bandaríkjaher hóf hernaðaraðgerðir þann 15. mars.  

Þegar gerðar voru sprengjuárásir á höfnina í Al Hudayda og Sana’a flugvöll, helstu lífæðar landsins, í maí, hamlaði það mjög innflutning á hverskyns matvælum, lyfjum sem og mannúðaraðstoð til Jemen. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu á vegum UN Women.

Í skýrslunni segir að sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir hafi verið gerð að skotmörkum. Þá hafa vatnsból og aðrir innviðir landsins verið eyðilögð. Talið er að þetta hafi haft bein áhrif á líf og heilsu um 400 barnshafandi og mjólkandi kvenna og 9.600 barna.

 

Einstæðar mæður á flótta

Árásirnar sem staðið hafa yfir frá upphafi árs hafa neytt fleiri á flótta og telja Sameinuðu þjóðirnar að frá janúar og fram í maí þetta ár hafi 6.000 einstaklingar lagt á flótta. Um 26% þeirra fjölskyldna sem flúið hafa eru einstæðar mæður með börn sín.

Þá hafa átökin orðið til þess að fjöldi lítilla fyrirtækja á borð við saumastofur og sápu- og reykelsisframleiðendur, sem oftast eru kvenrekin, hafa þurft að loka. Ekkjur og einstæðar mæður eiga því erfitt með að sjá sér farboða. Reglur og siðir er takmarka ferðafrelsi og viðnámsþrótt kvenna, þar með talið reglur um „mahram“, hafa jafnframt orðið konum fjötur um fót þegar þær reyna að flýja sprengjuárásir.

„Ástandið fer versnandi dag frá degi. Það má ekki horfa framhjá samlegðaráhrifum fátæktar, ofbeldis, flóttans og algjörs hruns heilbrigðisstofnana á líf kvenna og stúlkna. Það verður að fjárfesta í öryggi kvenna og tryggja að þær fái að lifa með reisn. Við verðum að bregðast við strax og standa vörð um réttindi þeirra og koma í veg fyrir áframhaldandi þjáningu,“ sagði Dr. Moez Doraid, svæðisstjóri UN Women í Arabaríkjunum.

Hægt er að lesa skýrsluna í heild sinni hér.

Related Posts