Ánægjulegt er að segja frá því að margir markverðir sigrar í kynjajafnréttisbaráttunni hafa unnist á árinu.
Kvennamorð gerð refsiverð í Brasilíu
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna undirritaði Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, ný lög sem kveða á um að gera kvennamorð refsiverð. Kvennamorð eru framin þegar konur er drepnar fyrir það eitt að vera konur. Með lagasetningunni eru „kvennamorð“ endurskilgreind sem glæpur sem felur í sér heimilisofbeldi, mismunun eða lítilsvirðingu gagnvart konum og stúlkum og leiðir þær til dauða. Lögin kveða á um þyngri dóma þ.e. 12-30 ára fangelsisvist auk þess sem dómarnir þyngjast ef brotaþolar eru barnshafandi, konur undir 14 ára aldri, konur yfir sextugt og konur og stúlkur með fatlanir. Þessi nýja löggjöf er gríðarlega mikilvæg og ómissandi þáttur við að draga úr ofbeldi gegn konum og stúlkum þar í landi. Nýju lögin eru ekki síður fordæmisgefandi fyrir stjórnvöld annarra ríkja og til að spýta í lófana og leggja lóð sín á vogarskálar í baráttunni fyrir kynjajafnrétti í heiminum.
Engar fleiri barnabrúðir í Gvatemala
Eftir margra ára þrýsting samþykkti loks landsþing Gvatemala ný lög sem kveða á um hærri lágmarks giftingaraldur, í 18 ára aldur, fyrir bæði kyn. Áður mátti gifta stúlkur 14 ára og stráka 16 ára gamla. Á árunum 2009-2013 voru yfir 80 þúsund stúlkur giftar undir 18 ára aldri, meirihluti þeirra giftist þrisvar sinnum eldri mönnum.
Nýju lögin koma til með að koma í veg fyrir kynferðislegt ofbeldi gagnvart stúlkum, ótímabærar þunganir, mansal og andlegt og líkamlegt ofbeldi. Nýju lögin gera einnig stúlkum kleift að ljúka skólagöngu, feta menntaveginn og njóta allra þeirra tækifæra sem lífið hefur upp á að bjóða.
Spor í rétta átt í Gambíu
Forseti Gambíu, Yahya Jammeh, tilkynnti á árinu að banna ætti limlestingu á kynfærum kvenna þar í landi. Sjötíu og sex prósent kvenna í Gambíu hafa orðið fyrir barðinu á þessum skaðlega sið, þar af 56 prósent undir 14 ára aldri en þess má geta að undanförnu hafa skurðir á barnsungum stúlkubörnum færst í aukana. En yfir 130 milljónir kvenna í heiminum hafa þurft að þola limlestingu á kynfærum sínum. Vonandi verður þessi skaðlegi siður upprættur sem fyrst og bann við honum festur í lög.
Konur kjósa og bjóða sig fram til kosninga í fyrsta sinn í Saudi Arabíu
Konur kusu og buðu sig fram í fyrsta sinn til borgar- og sveitastjórnarkosninga í Saudi Arabíu þann 12. desember. Konur hafa staðið frammi fyrir gífurlegum hindrunum í baráttu sinni fyrir að fá að bjóða sig fram og kjósa á leið sinni til valda og áhrifa. Í kringum sjö þúsund manns buðu sig fram til kosninga og kepptust um 2.100 þingsæti. 979 konur voru á meðal frambjóðenda en 1.35 milljón karlmanna og 130 þúsund konur voru á kjörskrá. Óskandi er að kosningarnar marki upphaf nýrra tíma sem auka réttindi kvenna og stúlkna í Saudi Arabíu og stigið hafi þar með stórt skref í baráttu fyrir kynjajafnrétti þar í landi.
Þær ánægjulegu fréttir bárust á árinu að sjöunda árið í röð trónir Ísland á toppnum yfir þær þjóðir þar sem ríkir mesta jafnréttið í heiminum. Vert er þó að minna okkur á að því fylgir ábyrgð að vera best.
Takk fyrir að leggja þitt af mörkum við að gera líf kvenna og stúlkna um allan heim betra. Stuðningur þinn er ómetanlegur!
Nýárskveðjur,
Landsnefnd UN Women á Íslandi
P.s. Skrifstofa landsnefndarinnar er lokuð til 7.janúar.

