
Mynd: UNICEF/UNI766933/Nateel
Þann 18. mars síðastliðinn hófu Ísraelar umfangsmestu árásir sínar á Gaza frá því að vopnahlé tók gildi og hafa þær drepið hundruð óbreyttra borgara síðan, þar á meðal konur og börn. Yfir 142.000 einstaklingar hafa bæst í hóp fólks sem er á vergangi og getur hvergi leitað sér skjóls.
Engin aðstoð hefur borist inn á Gaza síðan í byrjun mars og er þetta lengsti tíminn hingað til síðan 7. október 2023, þar sem mannúðaraðstoð kemst ekki inn á svæðið – og matur að verða uppurinn.
Líf, heilsa og reisn kvenna eru í alvarlegri hættu og örmagna íbúar Gaza fá enga hvíld frá stríði og eyðileggingu. Þungaðar konur eru sérstaklega viðkvæmar, en 50 prósent þeirra standa frammi fyrir áhættuþungun. Vannæring er nú þegar mikil meðal kvenna og barna á svæðinu.
Sérstakur fulltrúi UN Women í Palestínu segir frá aðstæðum á Gaza
Maryse Guimond, sérstakur fulltrúi UN Women í Palestínu, ávarpaði í síðustu viku fjölmiðlafund sem fram fór í Palais des Nations í Genf. Fundinn ávarpaði hún frá Jerúsalem.

Mynd: Mohammad Abdallah, Gaza
Maryse talaði þar um þær hörmulegu afleiðingar sem endalok vopnhlésins hefur á konur og stúlkur á Gaza, brostnar vonir Gazabúa sem höfðu mörg snúið heim aftur á meðan á vopnahléinu stóð og ákall kvenna um að fá að lifa og eiga öruggt líf á heimilum sínum. Hún lagði áherslu á að það eru konur og börn sem eru í meirihluta þeirra sem láta lífið í árásum Ísraelshers og sagði þetta ekki átök, heldur ,,stríð á hendur konum – virðingu þeirra, líkömum þeirra og afkomu.“ Þá ítrekaði hún ákall aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé og að mannúðaraðstoð nái óhindrað til fólksins á Gaza.
Maryse sagði frá einni af mörgum heimsóknum sínum til Gaza og aðstæðum kvennanna þar í júlí 2024, þar sem við henni blasti algjör eyðilegging og skortur.
Frásagnir kvenna á Gaza
UN Women ræddi við konur á Gaza í liðinni viku, til að tryggja að raddir þeirra heyrist. Frásagnir kvennanna lýsa angist og hryllingi:
,,Hvert förum við? Við flúðum til Al-Miraj, reyndum að setjast að… Hvert förum við núna?“ – Hayam, Al-Miraj, Rafah, Gaza
„Við erum límd við fréttirnar. Lífið hefur stöðvast. Við sváfum ekki alla nóttina, lömuð. Við getum ekki farið!“ – Hayam, Al-Miraj, Rafah, Gaza
„Frá klukkan 02:00 lýsti eldhaf upp himininn — loftárásir á 10 mínútna fresti.“ – Hanin, Deir al-Balah, Mið-Gaza
„Klukkan 02:30 undirbjuggum við suhoor [morgunverður fyrir föstu] og heyrðum síðan börn og konur öskra.“ – Suad, Khan Younis

Mynd: UNICEF/UNI766969/Nateel
Fyrstu dagana eftir að loftárásir Ísraela hófust að nýju þann 18. mars síðastliðinn, var um 800 Palestínufólk drepið á Gaza. Átta konur létu lífið á hverjum klukkutíma í loftárásunum þann 18. mars, milli klukkan 02:10 og 12:00. Árásin er ein sú mannskæðasta síðan 7. október 2023.
„Ég hef lifað af í gegnum hungur, umsátur og stríð, en gærkvöldið var öðruvísi. Það geymdi hvers kyns sársauka og niðurlægingu.“ – Suad, Khan Younis
„Yfir 150 orrustuþotur gerðu árás í einu. Öll Gaza vaknaði við sömu sprengjuárásina. Við erum aftur komin í sömu endalausu hringrásina.“ – Tahani, Gazaborg
Kalla eftir vopnahléi og óhindraðri mannúðaraðstoð
UN Women ítreka ákall aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um að vopnahléið verði virt, að mannúðaraðstoð nái til allra í neyð og að gíslunum verði sleppt tafarlaust og án skilyrða. Alþjóðalög ber að virða.

