Landsbankinn skrifar í dag, 12. september, undir Jafnréttissáttmálann (Women‘s Empowerment Principles – Equality means Business), alþjóðlegt átak UN Women og UN Global Compact.
Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans og Inga Dóra Pétursdóttir munu undirrita sáttmálann í útibúi bankans í Austurstræti kl. 11.45. Eftir undirritunina mun Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona mun eiga létt og einlægt spjall við viðskiptavini bankans um starfsemi UN Women og mikilvægi þess að við stöndum öll saman í baráttunni fyrir bættum kjörum kvenna í fátækustu löndum heims og á stríðsátakasvæðum.
Með undirskriftinni skuldbindur Landsbankinn sig til að vinna að bættum jafnréttissmálum innan fyrirtækisins og sýna samfélagslega ábyrgð. Í sáttmálanum eru sjö viðmið sem höfð eru að leiðarljósi til þess að efla konur innan fyrirtækja og til að auka þátt þeirra í atvinnulífinu.
Átaki UN Women var ýtt úr vör í mars á síðasta ári og hafa nú þegar hundruðir alþjóðlegra fyrirtækja skrifað undir Jafnréttis-sáttmálann, þar á meðal Microsoft, Avon og Johnson & Johnson.
Landsbankinn hefur unnið markvisst að því að efla jafnræði innan bankans undanfarið ár. Bankinn setti sér sömu markmið og sett voru í samstarfssamningi Félags kvenna í atvinnurekstri, Samtaka atvinnulífs og Viðskiptaráðs Íslands frá maí 2009, þar sem tryggt skal að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40% í forystusveit fyrirtækja. Hlutfall kynja í framkvæmdastjórn Landsbankans og dótturfélaga bankans hefur nú þegar verið jafnað.
UN Women á Íslandi stendur fyrir stóru fjáröflunarátaki, Fiðrildavika, sem hefst mánudaginn 12. september og stendur til 18. september en Landsbankinn er helsti bakhjarl átaksins.
Markmið átaksins er að vekja landsmenn til vitundar um stöðu kvenna í fátæktustu samfélögum heims og á stríðshrjáðum svæðum og fá sem flesta til að styrkja starfið með því að ganga í Systralag UN Women.
Inga Dóra Pétursdóttir framkvæmdastýra segir: „Það er ánægjulegt að Landsbankinn hefur bæst í ört stækkandi hóp fyrirtækja sem hafa skrifað undir Jafnréttissáttmálann. Þegar fyrirtæki hafa jafnréttissjónarmið að leiðarljósi sýnir það ekki aðeins samfélagslega ábyrgð heldur er það fjárfesting sem að borgar sig. Það er von UN Women á Íslandi að sem flest fyrirtæki taki Landsbankann sér til fyrirmyndar og vinni eftir Jafnréttissáttmálanum“.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans segir: ,,Landsbankinn er stoltur að því að undirrita Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact og fylgja þeim viðmiðum eftir í daglegu starfi bankans. Jafnframt er ánægjulegt að styðja við Fiðrildaátak UN Women og efla þar með konur víða um heim‘‘.
Nánari upplýsingar um Jafnréttissáttmálann má finna hér: