UN Women á Íslandi og Kaffitár skora á kaffiunnendur að bæta aðeins 100 krónum við kaffibollann sinn dagana 23. september til 7. október og veita þannig konum í fátækustu löndum heims kraft til þess að búa sér og börnum sínum betra líf og framtíð.
Skilvirkasta leiðin til þess að uppræta hungur og fátækt í heiminum er að efla konur í fátækustu löndum heims efnahagslega. Það margborgar sig að fjárfesta í kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna.
Vissir þú að konur inna af hendi 2/3 hluta allrar vinnu í heiminum, framleiða um helming alls matar en vinna sér þó aðeins inn 10 prósent allra tekna og eiga aðeins 1 prósent eigna?
Hægt væri að koma í veg fyrir hungur 150 milljón manna, með því að veita kvenbændum sama aðgang að verkfærum og lánum og tryggja landeignarrétt kvenna?
Á hverjum degi ganga Suður afrískar konur til að sækja sér vatn samanlagt vegalengd sem jafngildir því að fara 16 sinnum fram og til baka til tunglsins
Stuðningur landsmanna rennur í Jafnréttissjóð UN Women (Fund for Gender Equality) sem bætir líf kvenna og stúlkna með efnahagslegri og pólitískri valdeflingu. Sjóðurinn hefur þegar haft áhrif á líf 18 milljónir kvenna og fjölskyldur þeirra. Lestu sögu Maríu frá Gvatemala.
Kaffitár er samfélagslega ábyrgt fyrirtæki sem leggur áherslu á sanngjörn viðskipti við kaffibændur um allan heim. Með samvinnu við UN Women gefst viðskiptavinum að koma af stað frekari fiðrildaáhrifum með veita konum og fjölskyldum þeirra kraft. Margt smátt gerir eitt stórt.

UN Women vinnur hörðum höndum að því að:
…tryggja lagabreytingar sem heimila konum landeignarrétt svo þær geti ræktað eigið land og séð þannig fyrir fjölskyldum sínum en víða hafa konur ekki rétt til þess land sem þær yrkja
…tryggja að konur hafi greiðan aðgang að allri tækni sem nýtist í starfi
…tryggja að konur hafi greiðan aðgang að lánsfé
…tryggja að konur hafi aðgang að fræjum og tólum til að yrkja land sitt
…þjálfa leiðtogahæfni ungra kvenna
UN Women vinnur að valdeflingu kvenna og stúlkna á þessum sviðum.
Menntun
Nauðsynlegt er að tryggja öllum stúlkum skólagöngu. Konur sem hljóta grunnmenntun eru líklegri til þess að vera þátttakendur á atvinnumarkaði. Tryggja þarf öryggi stúlkna innan skólanna svo þær geti farið öruggar á salernið og ferðast til og frá skóla óáreittar. UN Women kappkostar að veita konum sem ekki hefðu kost á skólagöngu, fullorðinsfræðslu þar sem þær öðlast þekkingu í lestri og reikningi. Þessi þekking er nauðsynleg til að tryggja konum sjálfsöryggi í viðskiptum og til að þær standi jöfnum fótum á við annað viðskiptafólk. Einnig er mikilvægt þjálfa leiðtogahæfni ungra kvenna.
Lagabreytingar
Jafnrétti kynjanna þarf að endurspeglast í lögum. Fyrir kvenbændur er gríðarlega mikilvægt að tryggja lagaleg réttindi kvenna til ræktunar lands síns. Enn þann dag í dag, eru 81 ríki (af 196) sem meina konum landeignarétt og aðeins 83 ríki heimila að konur og stúlkur erfi eignmenn eða feður.
Jafnréttismál eru ekki einkamál kvenna
Eitt viðamesta og mikilvægasta verkefni UN Women er að ná til karlmanna og stráka, fræða þá um stöðu kynjanna og koma þeim í skilning um það að hefðum og venjum er hægt að breyta. Þá er einnig mikilvægt að þeir standi upp og taki þátt í baráttunni fyrir auknu jafnrétti kvenna.
Pólitísk þátttaka
Til þess að tryggja að sjónarmið kvenna komist að verða þær að geta nýtt sér lýðræðisleg réttindi. Konur út um allan heim búa nú í fyrsta í skipti í sögunni við lagalegan kosningarétt en mörgum reynist örðugt að nýta sér réttindi sín vegna félagslegra hindrana. UN Women beitir sér fyrir aukinni pólitískri þátttöku kvenna, auka hlut þeirra í sveitastjórnum, þingi og í öðrum leiðtogastöðum

