Í tilefni af Fiðrildaviku UN Women ætlar Kaffitár að gefa 50 krónur af hverjum seldum bolla af uppáhelltu kaffi til UN Women.
UN Women á Íslandi hvetur því alla Íslendinga að kíkja í Kaffitár og kaupa sér ljúffengan kaffibolla.
Markmið Fiðrildavikunnar er að hvetja landsmenn til þess að skrá sig sem styrktaraðila í Systralag UN Women. Með því að vera þátttakandi tekur þú þátt í að uppræta ofbeldi, fátækt og óréttlæti meðal kvenna í fátækustu samfélögum heims.
í Systralagi UN Women, stendur þú með systrum þínum víðsvegar um heim og eflir þær í viðleitni sinni til að skapa sér, börnum sínum og þar með samfélaginu öllu betri framtíð!
Kíktu við á næsta kaffihús Kaffitárs og fáðu þér uppáhellingu!