Fyrsti í aðventu nálgast óðfluga og er fátt huggulegra en að setjast niður í skammdeginu, kveikja á kerti og byrja að skrifa jólakortin til vina og vandamanna!
Jólakort UN Women eru hönnuð sérstaklega fyrir samtökin af Sóleyju Stefánsdóttur.
Innblásturinn fékk Sóley eftir dvöl í Mósambík. Litadýrð, mynstur og sterkar andstæður einkenndu upplifun hennar af Afríku. Við heimkomu fann Sóley sig knúna til þess að halda áfram að hanna með Afríku í huga og halda þannig í kraftinn sem umlék hana í Mósambík.
Sóley segir að sjálf að myndin tákni ólík tímabil á lífsleiðinni. Stundum er lífið á uppleið og stundum á niðurleið. Þegar við mætum fyrirstöðum í lífinu þurfum við að finna aðrar leiðir. En framundan er þó alltaf kraftur, birta, frelsi og fagrir fuglar á flugi.
UN Women finnur mikinn samhljóm með túlkun Sóleyjar og baráttu kvenna víða um heim fyrir auknum tækifærum og bættum lífskjörum fyrir sig og fjölskyldu sína.
Hægt er að kaupa UN Women jólakort með eða án áritaðri jólakveðju
Allur ágóði af kortunum rennur til UN Women og baráttunni gegn óréttlæti og mismunun kvenna í fátækustu löndum heims.
Verð: 1890 kr. fyrir 10 kort en stk. kostar 150 kr ef keypt eru fleiri en tíu kort.
Sendið póst á unwomen@unwomen.is til þess að panta kort eða hringið í síma 552-6200.
Einnig bjóðum við velunnurum að kaupa jólakerti UN Women. Þau eru til sölu á skrifstofu okkar á Laugavegi 42 milli 9 – 17 alla virka daga. Kertin kosta 1500 krónur og rennur allur ágóði óskert til UN Women.