
UN Women, yngsta stofnun SÞ, fagnar 15 árum í dag.
UN Women, yngsta stofnun Sameinuðu þjóðanna og sú eina sem vinnur alfarið í þágu jafnréttis, fagnar 15 ára afmæli sínu í dag, 2. júlí. UN Women starfar um allan heim og vinnur náið með kvenreknum félagasamtökum og stjórnvöldum í yfir 80 ríkjum að því að efla kynjajafnrétti.
Margt hefur breyst á þeim fimmtán árum sem liðin eru frá stofnun UN Women. Framfarir hafa orðið á sviði menntunar, heilbrigðismála og í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Aldrei hafa fleiri stúlkur stundað nám og einmitt í dag, þátttaka kvenna í stjórnmálum hefur aukist og tíðni mæðra- og ungbarnadauða hefur lækkað í flestum ríkjum heims.
En að því sögðu, þá búa stúlkur og konur enn ekki við jafnrétti. Víða hefur verið vegið að grundvallarmannréttindum kvenna og annarra jaðarsettra hópa undanfarin ár og markvisst grafið undan trúverðugleika alþjóðastofnana á borð við UN Women og undan stoðum lýðræðis. Réttur kvenna til að ráða yfir eigin líkama hefur verið takmarkaður og á heimsvísu hefur kynbundið ofbeldi aukist. Hinsegin fólk stendur frammi fyrir stóraukinni mismunun, vaxandi hatursorðræðu og ofbeldi. Vopnuð átök hafa hrakið milljónir á flótta og loftslagsbreytingar ógna afkomu og lífi fjölda fólks.
Kynslóð alin upp í stafrænum heimi
Stúlkur fæddar árið 2010, sama ár og UN Women var stofnað, tilheyra Alpha-kynslóðinni. Að sögn félagsfræðingsins Mark McCrindle, sem á heiðurinn af nafngiftinni, er Alpha-kynslóðin (einstaklingar fæddir 2010 til 2024) sú fyrsta sem er alfarið fædd og uppalin á 21. öldinni. Þessi kynslóð elst upp í stafrænum heimi og því fylgja í senn gríðarleg tækifæri og áður óþekktar áskoranir; starfrænt ofbeldi og -áreiti, skjáfíkn og greitt aðgengi barna að óviðeigandi efni sem og gríðarlegt magn upplýsingaóreiðu og falsfrétta. Tæknin hefur gert gerendum kynbundins ofbeldis kleift að hrella og ógna þolendum með áður óþekktum leiðum. Konur og stúlkur eru 27 sinnum líklegri til að verða áreittar á netinu en karlmenn og drengir. Afleiðingarnar eru þær að færri og færri konur og stúlkur treysta sér til að taka þátt í opinberri umræðu af ótta við áreitni og hótanir.
Ung en full eldmóðs
Þegar stúlkur fæddar árið 2010 ná fullorðinsaldri er talið að fjöldi jarðarbúa verði um 9 milljarðar og að hlutfall fólks 60 ára og eldra af mannfjölda verði í sögulegu hámarki. Það hefur í för með sér aukna ólaunaða umönnunarbyrði sem mun liggja á herðum kvenna Alpha-kynslóðarinnar, þ.e.a.s. ef ekki verður fjárfest í umönnunarstörfum og jafnrétti strax. Könnun á vegum UN Women sýndi að konur eyða að jafnaði þrefalt meiri tíma í ólaunuð heimilisstörf en karlmenn, eða að jafnaði 4,2 klukkustundum á dag, samanborið við þær 1,7 klukkustundir sem karlmenn eyða í heimilisstörf. Mæður eru jafnframt líklegri til þess að sinna veiku barni en feður – í Bandaríkjunum eru konur tíu sinnum líklegri en karlmenn til að taka sér frí úr vinnu til að vera heima og annast veikt barn.
Þó Alpha-kynslóðin muni taka við keflinu í framtíðinni, eru aðrar kynslóðir við stjórnvölinn í dag. Gen Z og Millennials-kynslóðirnar, kynslóðirnar á undan Alpha-kynslóðinni, eru að sögn Sameinuðu þjóðanna þær fyrstu sem nefna jafnrétti, loftslagsmál og aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu sem brýnustu málefni heimsins í dag, en 58% aðspurðra kváðust ekki vita hvaða skref eigi að taka til að styðja við þessi málefni.
UN Women er ung stofnun, en líkt og Alpha-kynslóðin er hún full eldmóðs og reiðubúin til að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru! Með þínum stuðningi getur UN Women áfram unnið að mikilvægum verkefnum í þágu jafnréttis um allan heim.

