Íslenska stjórnarráðið undirritar Jafnréttissáttmálann

Heim / Fréttir / Íslenska stjórnarráðið undirritar Jafnréttissáttmálann

UN-Women 270514 JON8406Íslensk stjórnvöld undirrituðu í dag jafnréttissáttmála UN Women, ásamt sex einkafyrirtækjum. Þetta er í fyrsta skipti sem allt stjórnarráð ríkis undirritar sáttmálann.
Jafnréttissáttmáli UN Women, stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, er alþjóðleg yfirlýsing sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við að innleiða ábyrga starfshætti, og snýr sáttmálinn fyrst og fremst að jafnrétti kynjanna. Jafnréttissáttmálinn inniheldur sjö viðmið, til dæmis að tekið sé mið af jafnréttismálum í allri stefnumótun fyrirtækisins og áætlunum og við framkvæmd verkefna.
Ísland hefur verið í fyrsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um jafnrétti kynjanna í fimm ár.
Kristin Hetle, sem sér um samstarf við viðskiptalífið hjá UN Women, segir undirritunina senda mikilvæg skilaboð. „Íslenska ríkisstjórnin er sú fyrsta til að skrifa undir viðmiðin. Það er skýr yfirlýsing, bæði til fyrirtækja á Íslandi, en einnig til annarra ríkisstjórna víðar í heiminum. Þetta sýnir að á Íslandi er jafnrétti kynjanna tekið alvarlega,“ segir Kristin.
Kristin segir að þeir sem skrifa undir sáttmálann þurfi sjálfir að sjá til þess að  honum sé fylgt eftir. „Munið að um leið og æðsti ráðamaður skrifar undir slíka skuldbindingu geta starfsmenn vinnustaðarins gert hann ábyrgan fyrir því að framfylgja reglunum,“ segir hún.

Related Posts