Ísland einn sterkasti styrktaraðili UN Women

Heim / Fréttir / Ísland einn sterkasti styrktaraðili UN Women

Amira er 53 ára og flúði Sýr­land fyr­ir tæp­um sex árum. Eig­inmaður henn­ar er týnd­ur en ekk­ert hef­ur spurst til hans síðan síðan um mitt ár 2012. Hún sækir griðarstað UN Women í Zataari flóttamannabúðunum í Jórdaníu.

UN Women á Íslandi sendi árið 2021 hæsta framlag allra tólf landsnefnda til verkefna UN Women, óháð höfðatölu, sjötta árið í röð. Þessi stórkostlegi árangur væri ómögulegur ef ekki væri fyrir mánaðarlegan stuðning okkar frábæru Ljósbera.

Minnst er á þennan einstaka árangur íslensku landsnefndarinnar í nýrri skýrslu frá höfuðstöðvum UN Women sem fjallar um mikilvægi kjarnaframlaga (e. regular resources). Þar er jafnframt minnst á öflugan stuðning íslenskra stjórnvalda, sem hafa veitt um 10 milljónum bandaríkjadala í kjarnasjóð UN Women frá árinu 2011. Ísland er það land sem hefur greitt þriðja hæsta framlag til kjarnasjóðs UN Women frá upphafi, miðað við höfðatölu. Þetta háa framlag endurspeglar áherslur íslenskra stjórnvalda um mikilvægi kynjajafnréttis í allri stefnu sinni.

8 ár til stefnu og mjög langt í land

Í formála rituðum af framkvæmdastýru UN Women, Simu Bahous, tekur hún fram að aðeins átta ár eru til ársins 2030, en tímamörk heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna eru það ár. Hún bendir á að þegar kemur að heimsmarkmiði 5 um kynbundinn jöfnuð, sé aðeins eitt af 18 undirmarkmiðum þess nálægt því að nást. Það er gríðarlega mikilvægt að vinna hraðar og betur að heimsmarkmiði 5, því án þess mun ekkert af hinum heimsmarkmiðunum nást.

Bahous bendir einnig á þá slagsíðu sem orðið hefur í jafnréttismálum um allan heim, áframhaldandi kyngeringu fátæktar (vegna samfélagslegrar stöðu sinnar og laga eru konur líklegri til að búa við sárafátækt en karlmenn) og aukningu í átaka-tengdum kynferðisbrotum, m.a. vegna stríðsins í Úkraínu.

Hvað eru kjarnaframlög?

Kjarnaframlög eru fjárframlög sem ekki eru eyrnamerkt ákveðnum verkefnum. Kjarnaframlög gera UN Women kleift að bregðast við krísum og neyðartilfellum á skjótan hátt, samanber aðgerðir vegna Covid-19 og stríðsins í Úkraínu og Afganistan.

Meðal þeirra verkefna sem kjarnaframlög hafa stutt síðasta áratuginn eru:

  1. 500 ríkisstjórnir, fyrirtæki og alþjóðastofnanir hafa hlotið aðstoð við að þróa og/eða innleiða kynjasjónarmið í stefnu sína og verkefni
  2. 16 borgir sem eru þátttakendur í verkefninu um öruggar borgir (e. Safe Cities and Safe Public Spaces) hlutu aðstoð við að framkvæma kynjaða gagnaöflun um kynferðislega áreitni í opinberum rýmum
  3. Meira en 560 þúsund konur og stúlkur, þ.m.t. konur á flótta og konur á vergangi í eigin ríki, hlutu mannúðaraðstoð
  4. 2,6 milljarða kvenna og stúlkna í 75 ríkjum búa nú við sterkari vinnulöggjöf og réttindi
  5. Konum er eiga þingsæti fjölgaði úr 19% upp í 26% á tíu árum
  6. 2,9 milljarða kvenna í 96 ríkjum búa við sterkari löggjöf og regluverk er kemur að meðhöldun kynferðisbrotamála
  7. 365 milljón einstaklingar í 42 ríkjum nutu góðs af kynjuðum viðbragðsáætlunum við náttúruhamförum

Við hjá UN Women þökkum Ljósberum okkar fyrir ómetanlegan stuðning við starf okkar.

Related Posts
Úkraína, KiyvKona, Malaví, landbúnaður