
Kvennalið Vals í handbolta ýtti March Forward úr vör innan íþróttahreyfingarinnar.
ÍSÍ og kvennalið Vals í handbolta taka þátt í March Forward herferð UN Women á Íslandi og ætla að vekja athygli á skilaboðum hennar innan íþróttahreyfingarinnar. ÍSÍ hvetur einnig öll innan íþróttahreyfingarinnar að leggja sitt af mörkum, styðja málefnið og biðlar til fólks að taka þátt. Þetta kemur fram í grein sem Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, skrifar.
March Forward er alþjóðlegt átak UN Women á Íslandi sem hófst á alþjóðlegum baráttudegi
kvenna þann 8. mars. Herferðin er leidd af UN Women á Íslandi en er unnin í samstarfi við hinar tólf landsnefndir UN Women. Markmið herferðarinnar er að vekja athygli á því bakslagi sem hefur orðið í jafnréttismálum undanfarin ár og hvetja til samtals og samstöðu um jafnrétti.
Heimilisofbeldi eykst samhliða stórum íþróttaviðburðum
Þrátt fyrir að Ísland standi framarlega í jafnréttismálum og hafi á undanförnum árum náð góðum
árangri innan íþróttastarfs er mikilvægt að horfa á stöðuna í alþjóðlegu samhengi. Í handbók
sem UN Women og UNESCO gáfu út haustið 2023 sem fjallar um kynbundið ofbeldi og áreitni
innan íþrótta kemur meðal annars fram að:
● 21% atvinnukvenna í íþróttum urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi sem barn í íþróttum. Þetta
er tvöfalt hærra hlutfall en meðal atvinnumanna í íþróttum
● Fatlaðar íþróttakonur eru þrefalt líklegri til að verða fyrir ofbeldi en ófatlaðar íþróttakonur
● Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar samhliða stórum íþróttaviðburðum á borð við
heimsmeistaramótið í fótbolta
● Íþróttakonur treysta sér ekki til að tilkynna ofbeldi af ótta við að þeim verði refsað og það
hafi áhrif á íþróttaferil þeirra
Í handbók UN Women og UNESCO kemur einnig fram að innan íþrótta ríkir víða gróft
kynjamisrétti og úreld viðhorf í garð kvenna og stúlkna sem viðgangast óáreitt. Vald og fjármagn
dreifist einnig ójafnt þar sem karlar skipa flestar stjórnunarstöður og íþróttamenn hljóta
hærri laun og æfa við betri aðstæður en íþróttakonur.
Því er mikilvægt að halda áfram í baráttunni og tryggja að íþróttahreyfingin sé aðgengileg fyrir
öll kyn og hópa samfélagsins.
,,Sem stærsta fjöldahreyfing landsins hefur íþróttahreyfingin mörg tækifæri. Við höfum áhrif. Við mótum viðhorf. Við sköpum fyrirmyndir og saman getum við staðið gegn kynbundnu misrétti og ofbeldi,” segir Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
Hvernig er hægt að taka þátt í March Forward?
Öll geta verið með í March Forward með því að taka þátt og deila „Backwards Walk“ á
samfélagsmiðlum sínum. Þá er hægt að skrifa undir ákall til stjórnvalda um að þau styðji við
aðgerðir í þágu jafnréttis.
Hægt er að skrifa undir ákallið hér.

