Þrjú ár liðin frá innrás Rússlands inn í Úkraínu

Heim / Fréttir / Þrjú ár liðin frá innrás Rússlands inn í Úkraínu

Konur á flótta eftir innrás Rússlands í Úkraínu.

Þrjú ár eru liðin frá innrás Rússlands inn í Úkraínu. Afleiðingar stríðsins hafa haft gríðarleg áhrif á líf allra í landinu; um 1,8 milljónir kvenna og stúlkna eru á flótta innan ríkis, 6,9 milljónir hafa flúið til annarra ríkja, 6,7 milljónir kvenna og stúlkna eru í brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð, þúsundir hafa verið drepin, orkuinnviðir landsins gerðir að skotmarki, ofbeldi í nánum samböndum hefur aukist og atvinnuleysi er mikið.

Þrátt fyrir þetta sýna úkraínskar konur enn gríðarlegan viðnámsþrótt og hugrekki. Þær hafa leitt dreifingu mannúðaraðstoðar, tekið fullan þátt í uppbyggingu efnahags landsins og stutt við samfélög sín með ýmsum hætti.

 

Áhrif stríðsins gríðarleg

Stríðið í Úkraínu hefur haft gríðarleg áhrif á líf kvenna og stúlkna í landinu. Þær búa við aukið atvinnuleysi, aukna umönnunarbyrði, slæma andlega heilsu vegna kvíða og áfallastreitu og tíðni kynbundins ofbeldis hefur stóraukist. Fyrir innrás Rússa var tíðni kynbundins ofbeldis í Úkraínu há, en hefur aukist um 36% frá árinu 2022.

Úkraínskar konur hafa ekki sama aðgengi að störfum og karlmenn. Árið 2023 voru konur 72,5% atvinnulausra í landinu. Árið 2024 höfðu innan við helmingur kvenna á flótta atvinnu, samanborið við 71% karlmanna á flótta. Tekjur kvenna voru að meðaltali um 41,4% lægri en tekjur karlmanna árið 2023, kynjaður launamunur jókst því um helming frá því sem hann var fyrir stríð. Úkraínskar konur eyddu að meðaltali 56 klukkustundum í ólaunuð umönnunar- og heimilisstörf árið 2024. Það er 49 klukkustundum meira en þær gerðu fyrir stríð. Lokun leik- og grunnskóla hefur mikil áhrif þar á. Sameinuðu þjóðirnar telja að um 3.800 konur og 289 stúlkur hafi verið drepnar í árásum Rússa frá upphafi stríðsins.

 

Halda ótrauðar áfram

Þrátt fyrir gríðarlegt mótlæti, erfiðar aðstæður og hættur, halda úkraínskar konur áfram að sýna gríðarlegan viðnámsþrótt og styrk. Konur sinna að miklu leyti mannúðarstarfi í Úkraínu, leiða grasrótar- og félagasamtök og hafa tekið sér stöðu sem frumkvöðlar í viðskiptalífi. Í dag er eitt af hverjum fyrirtækjum í Úkraínu stofnað og rekið af konu. Konur hafa að auki leitað í auknum mæli í störf sem fram að stríði voru að mestu karllæg, svo sem öryggisstörf og jarðsprengjuleit.

Talið er að um 160.000 ferkílómetrar af landi í Úkraínu sé þakið jarðsprengjum og öðrum ósprungnum sprengjum. Líklegt þykir að um 35 % sprengja verði eftir á átakasvæðum með tilheyrandi hættu fyrir almenning.

 

Mikilvægt að konur taki þátt í uppbyggingu landsins

„Full þátttaka kvenna er nauðsynleg þegar kemur að uppbyggingu Úkraínu eftir stríð. Sérstaklega ef við viljum byggja Úkraínu upp sem land þar sem jafnrétti og jöfn tækifæri ríkja. Það er því mikilvægt að áfram sé stutt við konur og stúlkur og kvenrekin félagsamtök,“ segir Sabine Freizer Gunes, fulltrúi UN Women í Úkraínu.

Árið 2024 studdi UN Women við 180.000 konur og stúlkur í Úkraínu í gegnum Women Peace and Humanitarian-sjóðinn. Þá hefur UN Women veitt sálræna og lagalega aðstoð í gegnum samstarf við félagasamtök og unnið að því að tryggja fjárhagslegt öryggi kvenna og stúlkna með ýmsum leiðum.

Þú getur stutt við verkefni UN Women í Úkraínu með stökum styrk eða með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili UN Women á Íslandi.

 

Related Posts
Myndir: Snorri Sturluson og Florian Hofer