Atvinnuvega-og nýsköpunarráðuneytið, landsnefnd UN Women á Íslandi, Samtök atvinnulífsins og Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð standa að Hvatningaverðlaunum jafnréttismála og verða þau afhent í fyrsta sinn þann 27. maí næstkomandi á ráðstefnunni „Aukið jafnrétti – Aukin hagsæld.“ Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun afhenda verðlaunin.
Markmiðið með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála er að vekja athygli á fyrirtækjum sem sett hafa jafnrétti á oddinn og jafnframt að hvetja önnur fyrirtæki til þess að gera slíkt hið sama. Aukið jafnrétti á atvinnumarkaði er ekki einungis lagalega og siðferðislega rétt heldur er það fyrirtækjum til heilla bæði út frá samfélagsábyrgð og viðskiptalegum forsendum.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir:
„Það er afar ánægjulegt taka þátt í þessu góða samstarfsverkefni um að koma á Hvatningarverðlaunum jafnréttismála fyrir atvinnulífið. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á það, sem okkur öllum á í raun að vera ljóst, að fjölbreyttari hópur innan fyrirtækja leiðir til betri ákvarðanatöku og framþróunar í atvinnulífinu. Sú leið sem hér er farin sem er að hvetja til framfara með því að verðlauna góðan árangur er að mínu mati best til fallin að tryggja enn betri árangur til framtíðar“.
Soffía Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi segir: „UN Women leggur mikla áherslu á að auka þátttöku kvenna á atvinnumarkaði og stuðla á þann hátt að efnahagslegri valdeflingu kvenna í heiminum því er ánægjulegt að standa að þessum verðlaunum“.
Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa stuðlað að:
– auknum möguleikum beggja kynja til starfsframa
– jöfnum launum kynjanna
– jöfnum hlutföllum kynjanna í stjórnendastöðum
– aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið
Umsóknarfrestur er til 21. maí næstkomandi.
Óskað er eftir tilnefningum en umsóknarfrestur er til 21. maí næstkomandi. Skráning fer fram hér.
Related Posts

