Hátíðarkveðja

Heim / Fréttir / Hátíðarkveðja

Jólakort mynd 2015Við hjá landsnefnd UN Women á Íslandi óskum þér og þínum gleðilegrar hátíðar!

Árið var viðburðaríkt hjá okkur. Fokk ofbeldi herferðin gekk vonum framar; Fokk ofbeldi armböndin seldust upp á tveimur vikum og yfir 3000 manns mætti á Milljarður rís og dansaði gegn kynbundnu ofbeldi í Hörpu og á fimmöðrum stöðum víðsvegar um landið.

Nýr söluvarningur, Fokk ofbeldi pokinn var kynntur í vorpokapartýi UN Women sem haldið var í Spark Design á Klapparstíg.

Karlmenn og strákar hér á landi tóku HeForShe átakinu Ólíkir en sammála um kynjajafnrétti fagnandi en yfir tvö þúsund karlmenn og strákar gerðust HeForShe á www.heforshe.is og hétu því þar með að beita sér fyrir kynjajafnrétti.

Vert að segja frá því að karlkyns mánaðarlegum styrktaraðilum fjölgaði töluvert á árinu. Aldrei hafa fleiri karlmenn skráð sig sem styrktaraðila landsnefndar UN Women á Íslandi en mánaðarlegum styrktaraðilum fjölgaði, óháð kyni, um 15 prósent á milli ára.

Hið öfluga Ungmennaráð UN Women stóð fyrir fjölbreyttum viðburðum á árinu; sem dæmi má nefna Zumba-veislu á Klambratúni þar sem yfir hundrað manns mættu og dönsuðu með sjö Zumba kennara í fararbroddi. Þátttökugjaldiðið rann til verkefna UN Women. Auk þess sem Ungmennaráðið hélt yfir tuttugu kynningar í skólum bæði á grunn- og framhaldsskólaaldri.

Um þrjátíu hlauparar Reykjavíkurmaraþonsins hlupu í nafni UN Women í ár og kunnum við öllum þeim kröftugu hlaupurum bestu þakkir fyrir.

Eins árs afmæli HeForShe átaksins var fagnað á haustdögum með vitundarvakningarherferð og bættust enn fleiri karlmenn og strákar í hóp HeForShe hér á landi.

Framkvæmdastýra UN Women, Phumzile Mlambo Ngcuka, sótti Ísland heim í október af tilefni 100 ára kosningaafmæli kvenna og átti landsnefndin góðan fund með henni. Auk þess efndu UN Women á Íslandi og utanríkisráðuneyti til opins spjallfundar í Hörpu þar sem þrír HeForShe hér á landi; þeir Ólafur Þ. Stephensen, Friðrik Dór Jónsson og Stefán Gunnar Sigurðsson útskýrðu hvers vegna þeir gerðust HeForShe. Fullt var út úr dyrum og í kjölfarið sköpuðust kröftugar umræður við framkvæmdastýruna, Phumzile og Elizabeth Nyamayaro, heilann á bak við HeForShe átakið.

Við þökkum kærlega fyrir ómetanlegan stuðning í þágu kvenna og stúlkna í fátækustu löndum heims og hlökkum til að hefja nýtt jafnréttisár með kraft og kærleika að vopni.

Jólakveðja,

Starfsfólk og stjórn UN Women á Íslandi

Related Posts