Haítí: 300.000 konur og stúlkur á vergangi án öryggis og heilbrigðisþjónustu

Heim / Fréttir / Haítí: 300.000 konur og stúlkur á vergangi án öryggis og heilbrigðisþjónustu
Mynd: UNICEF/Maxime Le Lijour | Bráðabirgðabúðir fyrir flóttafólk í Léogâne á Haítí
Mynd: UNICEF/Maxime Le Lijour | Bráðabirgðabúðir fyrir flóttafólk í Léogâne á Haítí

Óstöðugleiki á Haítí ýtir undir aukningu kynferðisofbeldis gegn konum. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu UN Women sem sýnir skelfileg lífskjör og skort á öryggi sem 300.000 konur og stúlkur á Haítí standa frammi fyrir. Áframhaldandi pólitískur óstöðugleiki í landinu hefur í för með sér stigvaxandi ofbeldi glæpagengja, auk þess sem fellibyljatímabilið ógnar Karíbahafinu enn frekar og gerir aðstæður mun erfiðari fyrir konur og stúlkur, sem eru 54 prósent þeirra 580.000 sem eru á flótta á Haítí.

Skýrslan sýnir fram á hvernig bráðabirgðabúðir fyrir fólk á flótta skortir helstu nauðsynjar og setja konur og stúlkur sérstaklega í hættu á að verða fyrir kynferðislegu- og kynbundnu ofbeldi. Hún byggir á könnun sem gerð var á sex fjölmennustu og fjölbreyttustu stöðunum í Port au Prince fyrir fólk á flótta innanlands (e. Internally Displaced People) þar sem sem 98 konur og stúlkur svöruðu spurningalista og 130 tóku þátt í rýnihópavinnu. Skýrslan sýnir að flestar búðir hafa enga lýsingu eða læsingu á nauðsynlegum svæðum eins og svefnherbergjum og salernum og þau sem búa í búðunum verða fyrir daglegum ógnum frá vopnuðum gengjum. Stöðug hætta á byssukúluregni og annarri hættu undirstrika hve brýn þörfin er á að bæta öryggi og vernd í búðunum.

Nauðsynlegt að tryggja þátttöku kvenna og stúlkna í allri ákvarðanatöku

Ofbeldi gegn konum og stúlkum, þá sérstaklega nauðgun, er notað í flestum búðum sem sérstök aðferð til að stjórna aðgangi kvenna að þeirri takmörkuðu mannúðaraðstoð sem í boði er. Nauðsynlegt er að tryggja virka þátttöku kvenna og stúlkna í ákvarðanatöku innan flóttamannabúða og koma á tafarlausum aðgerðum í þeim tilgangi að vernda konur og stúlkur sem eru í daglegri áhættu, en aðeins tvö prósent þeirra kvenna sem tóku þátt í könnuninni sögðust gegna forystuhlutverki í rekstri flóttamannabúðanna.

Framkvæmdastýra UN Women, Sima Bahous, sagði að skýrslan sýni fram á að það óöryggi og sú grimmd, þar á meðal kynferðislegt ofbeldi, sem konur verða fyrir af hendi gengja á Haítí sé fordæmalaust. „Það verður að hætta núna. Við hvetjum nýskipaða ríkisstjórn til að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir og bregðast við því ofbeldi sem konur og stúlkur verða fyrir og auka þátttöku kvenna í rekstri búðanna þannig að hlustað sé á áhyggjur þeirra varðandi öryggismál og brugðist við þeim.“ Þá sagði hún að mannúðaraðstoð yrði að koma til skila á öruggan hátt og í samræmi við mismunandi þarfir kvenna og stúlkna.

Hvorki vinnu eða heilbrigðisþjónustu að fá

Í skýrslunni kemur fram að yfir 88 prósent kvenna sem rætt var við hafa enga tekjulind í búðunum. Þar af leiðandi sögðust yfir 10 prósent hafa gripið til eða íhugað að minnsta kosti einu sinni möguleikann á kynlífsvinnu/vændi til að mæta þörfum sínum og 20 prósent til viðbótar þekktu að minnsta kosti einn einstakling sem hafði gert það. Um 16 prósent kvenna sem svöruðu sögðust hafa verið ógnað, áreittar eða lent í áfalli af völdum ofbeldisfullra vopnaðra glæpagengja og tæplega 70 prósent sögðust eiga við andleg vandamál að stríða vegna stigvaxandi ofbeldis. Aðeins 10 prósent kvenna sem tóku þátt í könnuninni sögðust hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu í flóttamannabúðunum.

UN Women styður við konur á Haítí

UN Women styður við kvennasamtök á Haítí til að ná til kvenna á flótta sem hafa leitað skjóls í nýju samfélagi eða í flóttamannabúðum, meðal annars í gegnum verkefni sem studd eru af Women’s Peace and Humanitarian Fund, the UN Peacebuilding Fund, og Þýskalandi. UN Women hefur einnig þjálfað lögreglufólk til að bæta forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og veita þjónustu til kvenkyns þolenda. Þar að auki heldur UN Women áfram að styðja kvenfrumkvöðla sem lenda í hindrunum og búa við viðvarandi ofbeldi, á vegferð þeirra til að vernda atvinnustarfsemi sína og öryggi sitt. Sú vinna fer fram í gegnum verkefnið um efnahagslega valdeflingu kvenna sem styrkt er af Noregi.

UN Women skorar á alla hagsmunaaðila sem taka þátt í verkefninu Multinational Security Support (MSS) að tryggja tafarlausa vernd fyrir konur og stúlkur og veita kvennasamtökum á Haítí leiðandi hlutverk í stjórnun og skipulagi þessara yfirfullu flóttamannabúða, þar sem líf þúsunda kvenna og stúlkna eru í hættu á hverjum degi.

Sjá upprunalega fréttatilkynningu hér.

Related Posts
Jan 26, 2023 - Poipet, Banteay Meanchey Province, Cambodia. Sum Srey Oun prepares dinner for her parents in law in the evening. Photo: UN Women/Nicholas Axelrod