Götukynnar UN Women slá í gegn!

Heim / Fréttir / Götukynnar UN Women slá í gegn!

nota_-_CopyGötukynnahópur UN Women sem tók til starfa í byrjun júní hefur staðið sig með einstakri prýði.

Á þessum fyrstu vikum sumars hafa þau staðið úti í veðri og vindum og kynnt fyrir borgarbúum starfsemi UN Women og skráð nýja styrktaraðila í Systralagið.

Á aðeins þremur vikum hefur þeim tekist að fá um 450 manns til liðs við Systralagið sem er ótrúlega góður árangur miðað við að á tveimur mánuðum í fyrra söfnuðust um 600 skráningar.

Við viljum hvetja alla til að taka vel á móti götukynnunum okkar í appelsínugulu stuttermabolunum í sumar og láta þá finna að starf þeirra er vel metið.

nota_2_-_Copy

Related Posts