Ert þú á leiðinni í afmæli, útskriftarveislu eða aðra skemmtilega veislu og ert að leita að hinni fullkomnu gjöf?
Með því að gefa þeim sem þér þykir vænt um gjöf frá UN Women, gleður þú ekki einungis viðtakanda heldur einnig þúsundir kvenna víða um heim sem búa við bág kjör og óviðunandi aðstæður.
Gjafir UN Women færa konum aukinn kraft, von og öryggi og gjöfin hefur því margfeldisáhrif. Hægt er að styrkja athvarf fyrir fórnarlömb sýruárása í Kambódíu, starfrækja neyðarsíma fyrir palestínskar konur og aðstoða ungar stúlkur og einstæðar mæður í Marokkó svo eitthvað sé nefnt.
Gjafabréfin eru prentuð á fallegan pappír með upplýsingum um verkefnið og persónulegri kveðju. Kíktu endilega á heimasíðu UN Women og gefðu gjöf sem gefur áfram. http://unwomen.is/index.php/gefeu-gjoef