Fyrirtækja samstarf
kynslóðar jafnréttis

Kynslóð Jafnréttis er stærsta jafnréttisátak sem UN Women hefur ráðist í frá stofnun samtakanna. Meginmarkmið átaksins er að vinna að úrbótum á þeim sviðum þar sem hallar mest á konur og stúlkur.
UN Women á Íslandi skuldbundið sig til að auka samstarfstækifæri við fyrirtæki á Íslandi í þágu Kynslóðar Jafnréttis. Þannig getur UN Women á Íslandi ásamt fyrirtækjum búið til jákvæð margföldunaráhrif, hér heima og erlendis. Fyrirtæki sem ganga til samstarfs við UN Women á Íslandi verða þátttakendur í þessu mikilvæga átaki og leggja sitt af mörkum í þágu jafnréttis og bættum heimi.
Um er að ræða samstarfsvettvang UN Women á Íslandi og fyrirtækja sem ætlaður er að hraða fyrir umbreytandi aðgerðum í þágu kvenna og stúlkna. Innan UN Women starfa margir af helstu sérfræðingum heims á sviði jafnréttismála og vill UN Women á Íslandi miðla þekkingu samtakanna til íslenskra fyrirtækja.
Nánari upplýsingar gefur Áslaug Ármannsdóttir rekstarstýra UN Women á Íslandi (aslaug@unwomen.is).

Samfélagsleg ábyrgð

Samfélagsleg ábyrgð

Samfélagsleg ábyrgð

Samfélagsleg ábyrgð

Samfélagsleg ábyrgð

Samfélagsleg ábyrgð
Vill þitt fyritæki taka þátt í Kynslóð jafnréttis?