Fundur kvennanefndar Sþ hafin – þema fundarinn er afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum

Heim / Fréttir / Fundur kvennanefndar Sþ hafin – þema fundarinn er afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum

Fimmtugasti og sjöundi fundur kvennanefndar Sameinuðu Þjóðanna (e. Convention on the Status of Women) hófst á mánudaginn sl. í New York.  Markmið fundarins er að fara yfir helstu baráttumál sem snúa að bættum hag kvenna um heim allan og hvernig best megi útfæra og laga tilskipanir og ályktanir.

200610_10150109630882544_406220_nÍ ár er þema fundarins afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum, sem er útbreiddasta mannréttindabrot í heiminum og óhætt er að kalla ofbeldi gegn konum og stúlkum heimsfaraldur.   Michelle Bachelet framkvæmdastýra UN Women ávarpaði allsherjarþingið á opnunardegi fundarins með eftirfarandi orðum:  „Ofbeldi gegn konum og stúlkum er enn útbreitt og refsileysi virðist vera venjan. Við verðum að takast á við þau viðamiklu verkefni sem við stöndum frammi fyrir og beita okkur af öllum þunga fyrir því að uppræta þetta mein og að ríki taki ábyrgð á þessum málaflokki.“

Fundurinn stendur yfir í tvær vikur og er þetta frábært tækifæri fyrir aðildarríki og frjáls félagasamtök að koma saman, deila reynslu og aðferðum við að binda enda á ofbeldi gegn konum og stúlkum. Starfskonur UN Women á Íslandi taka þátt í fundinum líkt og undanfarin ár og fylgjast með spennandi hliðarviðburðum frjálsra félagasamtaka og samningaviðræðum aðildarríkja Sþ.

Við hvetjum ykkur til þess að fylgjast vel með á Facebook næstu daga. Þar munum við birtar skemmtilegar fréttir frá fundinum.

Skrifstofa landsnefndarinnar verður lokuð til 18. mars næstkomandi. Vinsamlegast sendið póst á unwomen@unwomen.is.

Related Posts