UN Women fékk rausnarlega afmælisgjöf frá Borgarleikhúsinu á dögunum þegar allur ágóði af sérstakri styrktarsýningu á Eldhafi rann til UN Women á Íslandi. Um 350 þúsund krónur söfnuðust á sýningunni og starfsfólk samtakanna brosir hringinn eftir vel heppnað kvöld.

Verkið var gríðarlega áhrifamikið og í kjölfar sýningarinnar mynduðust líflegar umræður um jafnréttismál með leikurum og leikstjóra og bar þá helst á góma hlutverk karlmanna í jafnréttisbaráttunni.
Það eru einungis örfáar sýningar eftir og hvetur UN Women alla þá sem ekki hafa nú þegar séð sýninguna að næla sér í miða.
Þá vilja samtökin sérstaklega þakka Unni Ösp Stefánsdóttur leikkonu fyrir allt sem hún hefur gert fyrir UN Women. Unnur Ösp átti hugmyndina að samstarfinu og það er henni að þakka að styrktarsýningin heppnaðist svona vel!
Einnig vilja samtökin þakka Magnúsi Geir, Hafliða, Hildi, Jorra, Birgittu, Guðjóni, Láru, Bergi, Þóri, Jörundi og öllu öðru starfsfólki Borgarleikhússins kærlega fyrir. Stuðningur ykkur er ómetanlegur!