Ein milljón kvenna og stúlkna á Gaza sveltur – UN Women krefst tafarlausra aðgerða

Heim / Fréttir / Ein milljón kvenna og stúlkna á Gaza sveltur – UN Women krefst tafarlausra aðgerða
Konur á Gasa bíða eftir matardreifingu. Mynd: UNICEF/Mohammed Nateel

Ein milljón kvenna og stúlkna á Gaza býr við lífshættulegt ástand sem einkennist af alvarlegri vannæringu, ofbeldi og misnotkun. Öll helsta grunnþjónusta er hrunin og konur og stúlkur neyðast til að grípa til örvæntingarfullra og hættulegra aðferða til að lifa af. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem UN Women sendi frá sér í gær.

Konur og stúlkur á Gaza standa frammi fyrir óbærilegu vali milli þess að halda kyrru fyrir í skjóli sínu og svelta – eða leggja líf sitt í hættu við að leita að mat og vatni. Börnin þeirra svelta fyrir framan augun á þeim. Þetta er hryllilegt, óásættanlegt og ómannúðlegt,“ segir Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women. Þá ítrekar hún að þessum þjáningum verði að linna tafarlaust, að öll mannúðaraðstoð fái óhindraðan aðgang inn á svæðið og að vopnahléi sem leiðir til langvarandi friðar verði komið á tafarlaust.

Konur neyðast til að sjóða ónýtar matarleifar fyrir börnin sín.

Kvennasamtök á Gaza lýsa hörmulegum aðstæðum þar sem konur sjóða ónýtar matarleifar til að fæða börn sín og taka áhættu á að verða drepnar þegar þær reyna að nálgast mat og vatn. Á sama tíma hafa þær ekki lengur aðgang að nauðsynjum sem eru grundvöllur fyrir heilsu þeirra, öryggi og mannlega reisn.

Konur og börn bera þyngstu byrðarnar

Konur og börn hafa borið þyngstu byrðarnar í þessu stríði frá upphafi. Yfir 28.000 konur og stúlkur hafa verið drepnar, flestar mæður sem skilja eftir sig börn og aldrað fólk án umönnunar. Barnshafandi konur fá enga næringu og fæða börn sín við lífshættulegar aðstæður – án vatns, hreinlætis eða heilbrigðisþjónustu.

Skýr krafa um aðgerðir og frið

UN Women tekur undir ákall Sameinuðu þjóðanna og mannúðarsamtaka um að binda verði enda á þennan hrylling. UN Women krefst þess að:

  • Konur og stúlkur fái óhindraðan aðgang að mannúðaraðstoð
  • Öllum gíslum verði sleppt úr haldi
  • Vopnahléi sem leiði til langvarandi friðar verði komið á án tafar.
Tímapunktur til aðgerða

Í vikunni standa Sameinuðu þjóðirnar fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um Palestínu og Ísrael, undir forsæti Frakklands og Sádi Arabíu. UN Women bindur vonir við að friðsamleg lausn sé innan seilingar. Stofnunin tekur undir orð António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, um að leggja þurfi grunn að raunhæfri tveggja ríkja lausn, þar sem Ísrael og Palestína geti búið hlið við hlið í friði og öryggi.

Hér má lesa yfirlýsinguna má lesa í heild sinni.

Related Posts