Ég sé Malölu í ykkur öllum

Heim / Fréttir / Ég sé Malölu í ykkur öllum
10365879 10152065168336905 5422602292359166348 nÍ kjölfar hörmulegra atburða sem vakið hafa óhug umheimsins þegar meira en 200 skólastúlkur voru numdar á brott, heimsótti Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastýra UN Women, stúlknaskóla í Abaji í Nígeríu ásamt sendinefnd.
Skólinn sem hún heimsótti er einn af ríkisreknum stúlknaskólum líkt og sá í Chibok sem varð fyrir árásinni.
Í yfirlýsingu sem framkvæmdastýran gaf í tilefni heimsóknarinnar fullvissar hún nígerískan almenning um að Sameinuðu þjóðirnar muni leggja allt í sölurnar til að tryggja að stúlkur geti haldið áfram að mennta sig í öruggu umhverfi.
„Við munum standa þétt við bakið á ykkur. Munum vera til staðar fyrir ykkur alla leiðina og munum vinna að því hörðum höndum að tryggja að þegar stúlkurnar snúa aftur heim fái þær þá aðhlynningu og stuðning sem þær og fjölskyldur þeirra þurfa. Stúlkur í Nígeríu verðskulda bestu menntun, umhyggju og stuðning sem völ er á. Ég sé Malölu í ykkur öllum vegna hugrekkis ykkar og óttaleysis þegar kemur að mæta í skólann á hverjum degi þrátt fyrir skelfilegar og ógnvekjandi aðstæður, því þið vitið að það er það sem rétt er að gera.“
Á móti hópnum tóku fulltrúar stjórnvalda, skólastjóri skólans auk fjölda nemenda.
„Hjörtu okkar blæða. Allir eru slegnir yfir mannráninu á dætrum okkar en með samstöðu hef ég fulla trú á því að við munum sigra,“ var haft eftir Hajiya Zainab Maina, kvenna- og félagsmálaráðherra Nígeríu. Hún hrósaði starfi UN Women við að stuðla að velferð kvenna og stúlkna í Nígeríu og þá sérstaklega þá áherslu sem lögð hefur verið á menntun stúlkna í nánu samstarfi við ráðuneyti hennar. Phumzile Mlambo-Ngcuka þakkaði hún sérstaklega fyrir auðsýndan samhug og heimsbyggðinni allri fyrir samstöðu og stuðning.
Hún beindi orðum sínum næst til nemendanna: „Ekki láta hugfallast. Ekki vera hræddar. Ekkert mun henda ykkur. Þið verðið að halda ótrauðar áfram. Við erum saman komin hér í dag til að hvetja ykkur áfram og láta ykkur vita að við munum tryggja áframhaldandi skólagöngu ykkar og bjarta framtíð. Við viljum tryggja að þið verðið bestu stjórnmálamenn, ráðherrar, viðskiptafrumkvöðlar og jafnvel forsetar þessarar þjóðar. Þegar við menntum stúlkur menntum við heila þjóð“
Fulltrúi menntamálaráðuneytis Nígeríu, MacJohn Nwaobiala ávarpaði einnig viðstadda: „Þetta eru stúlkurnar okkar. Þær eru framtíð þjóðar okkar. Við verðum að tryggja að þær fái það allt það besta, þar með talið menntun.“
Lesin voru upp sérstök skilaboð frá fulltrúa skólastúlknanna sem óskaði stallsystrum sínum öruggrar heimkomu og bað UN Women um að tryggja að stúlkur fái menntun svo þær geti verið undirbúnar fyrir „það sem lífið hefur upp á að bjóða“.
 Vilt þú leggja systrum þínum lið. Þú getur gert það með því að skrá þig sem mánaðarlegur styrktaraðili UN Women á Íslandi hér.
Related Posts