„Dreptu ‏þig bara“ – stafrænt ofbeldi og áhrif þess í raunheimum

Heim / Fréttir / „Dreptu ‏þig bara“ – stafrænt ofbeldi og áhrif þess í raunheimum

Áhugaverðar umræður áttu sér stað á málþingi UN Women Íslandi og ÖBÍ.

UN Women á Íslandi og ÖBÍ stóðu fyrir málstofu á Alþjóðleg­um bar­áttu­degi Sam­einuðu þjóðanna gegn kyn­bundnu of­beldi, þann 25. nóvember. Dag­ur­inn mark­ar upp­haf 16 daga átaks gegn kyn­bundnu of­beldi, sem UN Women á Íslandi stendur að ásamt fjölda annarra félagasamtaka. Alþjóðleg áhersla átaksins í ár er á stafrænt kynbundið ofbeldi. 

Málstofan bar yfirskriftina “Dreptu þig bara” – stafrænt ofbeldi og áhrif þess í raunheimum”. Þátttakendur voru Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri afbrotavarna hjá Ríkislögreglustjóra, Ólafur Hrafn Steinarsson, framkvæmdastjóri Aska Studios og fyrrum formaður RÍSÍ, og Melína Kolka, framkvæmdastjóri TÍK – Tölvuleikjasamtaka íslenzkra kvenna og Bergrún Andradóttir, fulltrúi frá Samtökunum 78. Rakel Þorbergsd‏óttir, fjölmiðlakona og uppl‎ýsingafulltrúi, stýrði umræðum. Sunna Elvíra Þorkelsdóttir, lögfræðingur hjá ÖBÍ, opnaði viðburðinn.

Stafrænt ofbeldi algengara en kynbundið ofbeldi?

Áhersla 16 daga átaksins í ár er á stafrænt ofbeldi. Tækniframfarir síðustu ára hafa verið samfélögum til góða á margan hátt. En ‏þær hafa einnig skapað ný rými þar sem kynbundið ofbeldi og áreitni fær að þrífast óáreitt. Ný gögn sýna að stafrænt ofbeldi er jafn útbreitt, ef ekki algengara, og kynbundið ofbeldi. Nærri tvær af hverjum þremur konum í heiminum hafa orðið fyrir stafrænu kynbundnu ofbeldi.

Kynferðisleg áreitni og eltihrelling eru algengustu birtingarmyndir stafræns ofbeldis gegn konum og stúlkum; dreifing nektarmynda án samþykkis, óumbeðin skilaboð, niðrandi færslur á samfélagsmiðlum og símtöl. Aðrar birtingarmyndir stafræns ofbeldis eru neteinelti, hatursorðræða, ærumeiðingar, dreifing nektarmynda, hótanir um birtingu mynda (sextortion) og hefndarklám. Ofbeldið á sér stað í ólíkum stafrænum miðlum: snjallsímum, tölvum, spjallrásum, samfélagsmiðlum, og í tölvuleikjum.

Related Posts