Dönsum hringinn í kringum heiminn

Heim / Fréttir / Dönsum hringinn í kringum heiminn

Dansht_UN_Women-PLAKATLOKA_Facebook1

Danshátíð UN Women hefst í Baðhúsinu 11. september. Kenndir verða fjórir dansstílar, samba, bollywood, magadans og afró á fjórum vikum á þriðjudögum og fimmtudögum frá 19.45-20.45.

Fjórir þaulreyndir danskennarar sjá um að halda fjörinu á lofti. Margrét Erla Maack sér um að kenna Bollywood, Þórdís Nadia Semichat kennir magadans, Kristín Bergsdóttir kennir samba og Álfheiður Anna Pétursdóttir kennir afró. Kennarar munu allir gefa vinnu sína og Baðhúsið aðstöðu svo allur ágóði rennur óskiptur til UN Women.

Skráning fer fram á alfheidur@unwomen.is og í síma 552-6200 og 698-0181. Athugið að ekki er nauðsynlegt að vera viðskiptavinur Baðhússins til að taka þátt.

Hátíðin hefst með kynningarkvöldi á starfsemi UN Women á Café Haiti þann 9. sept. kl 20.30. Einnig verða dansstílar kynntir og skoðuð verða verkefni sem UN Women hefur styrkt í þeim löndum og svæðum þaðan sem dansarnir eru upprunnir. Hátíðinni lýkur svo með heljarinnar dansveislu þar sem kennarar, nemendur, starfsfólk og stjórn UN Women á Íslandi og aðrir áhugasamir munu stíga trylltan dans og gleðjast saman langt fram á kvöld.

Markmið danshátíðarinnar er að vekja athygli á alþjóðlegum dansi og menningu sem á sívaxandi vinsældum að fagna á Íslandi og kynna þau lönd og svæði þaðan sem dansstílarnir eiga rætur sínar að rekja. Öldum saman hafa konur víða um heim haldið dansinum á lofti og nú er sá mikli menningararfur í auknum mæli farinn að skila sér til Vesturlanda. Á sama tíma býr fjöldi kvenna um heim allan við bág kjör, misrétti og ofbeldi. Þessu vill UN Women breyta. Það er því okkar von að með danshátíð sem þessari geti íslenskar konur fagnað þeirri menningarlegu fjölbreytni sem við höfum í auknum mæli aðgang að og stutt á sama tíma við bak þeirra kvenna sem gert hafa okkur kleift að njóta dansins og gleðjast.

Fullt verð fyrir námskeiðið er 18.900. Innifalið í því eru tveir danstímar í viku í fjórar vikur auk kynningarkvölds í upphafi og lokahátíðar. Námsmönnum og viðskiptavinum Baðhússins býðst 20% afsláttur af heildarverði. Í boði verður einnig að taka eina, tvær eða þrjár vikur af námskeiði.

Það er von UN Women að sem flestir muni nýta sér þetta gullna tækifæri til að kynnast skemmtilegum dansstílum víða að úr heiminum og styrkja gott málefni á sama tíma.

Nánari upplýsingar veitir Álfheiður Anna Pétursdóttir, alfheidur@unwomen.is og í síma 552-6200 og 698-0181

Related Posts