
Tvö ríki greiddu atkvæði gegn ályktuninni um Afganistan.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti á mánudag með yfirgnæfandi meirihluta ályktun þar sem miklum áhyggjum er lýst yfir vegna versnandi stöðu mannúðaraðstoðar, efnahags og mannréttinda í Afganistan. Í ályktuninni er skorað á talíbanastjórnina að snúa frá takmörkunum á réttindum kvenna og tryggja stjórn með þátttöku allra hópa.
Ályktunin var samþykkt með 116 atkvæðum, 12 ríki sátu hjá og 2 ríki greiddu atkvæði gegn ályktuninni, Ísrael og Bandaríkin. Ályktunin tekur á þeim margþætta vanda sem Afganistan stendur frammi fyrir, nærri fjórum árum eftir valdatöku talíbanastjórnarinnar. Jafnframt er kallað eftir auknum stuðningi alþjóðasamfélagsins við afgönsku þjóðina, svo hún fái notið mannréttinda, friðs og stöðugleika.
Í ályktuninni er lögð áhersla á nauðsyn samræmdrar nálgunar milli mannúðar-, stjórnmála- og þróunaraðila. Þá er áhyggjum lýst yfir vegna kerfisbundinnar kúgunar á konum og stúlkum í landinu. Talibanastjórnin er hvött til að hverfa frá ríkjandi stefnu sem útilokar konur frá menntun, atvinnu og þátttöku í opinberu lífi.
Handtökuskipun á æðstu menn talíbanastjórnar
Þá gaf Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn (ICC) á þriðjudaginn út handtökuskipun á hendur tveggja yfirmanna talíbanastjórnarinnar, Haibatullah Akhundzada og Abdul Hakim Haqqani, sem setið hafa við völd frá 15. ágúst 2021.
ICC er milliríkjastofnun staðsett í Haag í Hollandi. Dómstóllinn hefur sjálfvirka lögsögu sem sóknaraðili gegn einstaklingum sem grunaðir eru um alþjóðaglæpi og er sem slíkur óháður sérstöku samþykki viðkomandi ríkja. Dómstóllinn getur tekið fyrir mál á borð við þjóðarmorð, glæpi gegn mannúð og stríðsglæpi.
Dómstóllinn telur að rökstuddur grunur sé um að Haibatullah Akhundzada og Abdul Hakim Haqqani hafi framið glæpi gegn mannkyninu með því að skipa fyrir, hvetja til eða stuðla að ofsóknum gegn stúlkum, konum og einstaklingum sem ekki samræmast stefnu talíbanastjórnarinnar um kyn, kynvitund eða -tjáningu, sem og einstaklingum sem taldir eru „bandamenn stúlkna og kvenna“.
Hafa svipt konur og stúlkur öllu
Dómstóllinn telur víst að talíbanastjórnin hafi ítrekað brotið á grundvallarmannréttindum og frelsi almennra borgara, myrt þá, fangelsað, pyntað, og beitt nauðgunum gegn konum og stúlkum sem brjóta gegn reglum stjórnarinnar. Talíbanastjórnin hafi svipt konur og stúlkur öllum helstu grundvallarmannréttindum sínum, þar með talið réttinum til menntunar, einkalífs og fjölskyldulífs, sem og ferðafrelsis.
Að auki telur dómstóllinn að einstaklingar sem setja sig upp á móti stefnu talíbanastjórnarinnar, jafnvel með aðgerðaleysi einu saman, hafi einnig verið gerðir að skotmarki Talibana. Þessum einstaklingum hefur verið lýst sem „bandamönnum stúlkna og kvenna“ og lítur talíbanastjórnin á þá sem pólitíska andstæðinga.

