
Ársskýrsla UN Women á Íslandi fyrir árið 2024 er komin út. Hana má nálgast hér.
Bakslag í jafnréttismálum

vatn. Mynd/UN Women
Í innganginum að ársskýrslu UN Women á Íslandi árið 2022 var fjallað um bakslagið sem orðið hafði í jafnréttismálum árin á undan. Fullyrt var að mikilvægi stofnunarinnar hefði aldrei verið meira en einmitt þá. Ári síðar voru efnistök inngangsins þau sömu; bakslagið átti þó ekki aðeins við um jafnréttisbaráttuna, heldur einnig um stöðu friðar og alþjóðasamvinnu. Það ár horfðum við upp á hvernig mannréttinda- og mannúðarstofnanir líkt og UN Women og aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna, voru gerðar að blórabögglum og að skotmarki afla sem höfðu það eitt að markmiði að draga úr mannréttindum ákveðinna hópa fólks.
Árið 2024, tveimur árum síðar, var staðan lítt skárri. Áfram var vegið að grundvallarmannréttindum kvenna og annarra jaðarsettra hópa um allan heim. Grafið var undan trúverðugleika alþjóðastofnana og félagasamtaka með markvissum hætti og um leið grafið undan stoðum lýðræðis. Þetta er ógnvænleg þróun sem mikilvægt er að sporna gegn. Á þessum umrótatímum er því ljóst að erindi UN Women á Íslandi og annarra samtaka sem starfa í þágu jafnréttis og mannréttinda, hefur sjaldan verið brýnna. Því er mikilvægt að tryggja starfsemi slíkra samtaka.
Ljósberar UN Women á Íslandi

Mánaðarlegir styrktaraðilar UN Women á Íslandi, Ljósberar, eru gríðarlega mikilvægir þar sem framlög þeirra eru stærsta tekjulind samtakanna. Þeir sýna í verki hversu mikilvægt það er að sameina krafta okkar í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og kynjamisrétti. Á árinu 2024 voru nýskráningar Ljósbera 1.058 talsins og var heildarfjöldi virkra Ljósbera 9.891 í árslok. Kynjahlutföll voru nokkuð jöfn. Heildarframlög Ljósbera hækkuðu um þrjár og hálfa milljón milli ára og voru 197.707.051 árið 2024. Styrkurinn frá Ljósberum styður við réttindi kvenna og stúlkna um allan heim. Hann fer meðal annars í neyðaraðstoð til kvenna á flótta og fjölskyldna þeirra, stuðning við grasrótarsamtök um allan heim sem vinna í þágu kvenna og stúlkna og rekstur athvarfa fyrir þolendur ofbeldis.
Við hjá UN Women á Íslandi erum einstaklega þakklát fyrir þá samstöðu og þann stuðning sem við fáum frá Ljósberum.
Kjarnasjóður UN Women

Eitt mikilvægasta hlutverk UN Women á Íslandi er að afla fjár til verkefna UN Women. Fjármagnið rennur fyrst og fremst í kjarnasjóð UN Women, sem síðan útdeilir fjármagni til verkefna um allan heim og tryggir þannig fjárhagslegan grunn þeirra. Um 90% af framlögum íslensku landsnefndarinnar fer beint í kjarnasjóð UN Women. Íslenska landsnefndin hefur undanfarin ár sent hæstu kjarnaframlög allra 13 landsnefnda, óháð höfðatölu.
Vitundarvakning og fræðsla

Árið 2024 var annasamt hjá UN Women á Íslandi, sem stóð fyrir fjölda herferða og fræðsluverkefna, og má þar helst nefna hina árlegu FO-herferð gegn kynbundnu ofbeldi, Ljósagöngu UN Women á Íslandi og hinum ýmsu viðburðum í samstarfi við Mannréttindahúsið. Þá tók framkvæmdastýra UN Women á Íslandi þátt í fjölda málstofa og viðburða fyrir hönd samtakanna. Má þar nefna kynningar fyrir UAK, þátttöku í viðburðum á vegum Mannréttindahússins, Læknadögum, nema í lögfræði í HR, nema í GRÓ Gest skólanum, sem og þátttöku í Reykjavík Global Forum.
Mikilvægi Íslands í jafnréttismálum
Ísland hefur verið efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) yfir jafnrétti kynjanna í fimmtán ár samfleytt. Listinn metur stöðu kynjajafnréttis í 146 löndum út frá stjórnmálaþátttöku kvenna, atvinnutækifærum, heilbrigðismálum og tækifærum til menntunar. Ísland er eina ríki heims sem er með meira en 90 stig af 100. Á tímum þar sem vegið er að réttindum kvenna og stúlkna um allan heim er mikilvægt að Ísland haldi áfram að vera leiðandi í jafnréttismálum á alþjóðavettvangi. Með samstöðu og djörfum ákvörðunum á öllum stigum samfélagsins gæti Ísland orðið fyrsta ríki heims til að ná jafnrétti að fullnustu – og þar með skráð sig í sögubækurnar.

UN Women á Íslandi þakkar Ljósberum, samstarfsfyrirtækjum, stjórnvöldum og velunnurum fyrir stuðninginn árið 2024. Án ykkar stuðnings væri allt okkar starf ógerlegt.

