Ársskýrsla UN Women á Íslandi 2020 komin út

Heim / Fréttir / Ársskýrsla UN Women á Íslandi 2020 komin út

Ársskýrsla UN Women á Íslandi er komin út. Hana má nálgast hér

Umsvif UN Women á Íslandi hafa aukist undanfarin ár og er eitt stærsta hlutverk samtakanna að afla fjár til alþjóðlegra verkefna UN Women. Fimmta árið í röð sendir UN Women á Íslandi hæsta framlag allra tólf landsnefnda stofnunarinnar til verkefna UN Women víða um heim, óháð höfðatölu.

Verkefni UN Women á Íslandi voru fjölbreytt á árinu og setti heimsfaraldurinn mark sitt á starfið þar sem ýmsir fastir liðir fóru fram með breyttu sniði eða hreinlega frestuðust. En þrátt fyrir heimsfaraldurinnog meðfylgjandi efnahagsþrengingar varð 7% aukning á framlögum til UN Women á milli ára. Á árinu bættust rúmlega 1.500 mánaðarlegir styrktaraðilar í hóp ljósbera, styrktaraðila UN Women sem teljast nú hátt í tíu þúsund talsins. Ljósberar eru á öllum aldri og búa í öllum landshlutum en þetta árið voru karlar áberandi í hópi nýrra ljósbera, eða 40% þeirra. Þörfin hefur hins vegar aldrei verið meiri en nú. Sértæk áhrif COVID-19 á konur og stúlkur hefur ómæld áhrif á líf kvenna í ljósi aukins ofbeldis gegn konum og stúlkum umallan heim.

Við þökkum ljósberum UN Women á Íslandi fyrir ómetanlegan stuðning mánaðarlega sem og öðrum styrktaraðilum samtakanna. Við horfum björtum augum til framtíðar og gefum allt í botn í baráttunni fyrir bættum hag og velferð kvenna og stúlkna.

Lesa má ársskýrsluna í heild sinni hér

Related Posts