Ársskýrsla UN Women 2011

Heim / Fréttir / Ársskýrsla UN Women 2011

Kæru velunnarar,

ársskýrsla UN Women á Íslandi er komin út. Tekin var sú ákvörðun að prenta ekki ársskýrslu samtakanna líkt og undanfarin ár, heldur fara vistvænni og ódýrari leið og gefa hana aðeins út á rafrænu formi.

Hægt er að nálgast skýrsluna hér

Síðasta ár var merkilegt fyrir samtökin. UNIFEM sameinaðist þremur öðrum systurstofnunum sínum innan SÞ og varð að UN Women. Landsnefndin fagnaði þessari breytingu og viðbrögð landsmanna komu okkur ánægjulega á óvart. Fjöldi mánaðarlegra styrktaraðila tvöfaldaðist á árinu tvöfaldaðist á árinu og framlag Íslendinga til verkefna sem miða að því að bæta aðstæður kvenna í fátækustu löndum heims hækkaði um 140 prósent frá árinu áður. Við kunnum styrktaraðilum okkar kærar þakkir fyrir ríkulegan stuðning.wg9

Landsnefndin stóð einnig fyrir fjáröflunarviku sem bar heitið Fiðrildavika, og tókst mjög vel. Fjöldinn allur af sjálfboðaliðum og fyrirtækjum lögðu samtökunum lið og er óhætt að segja að Fiðrildavikan hefði ekki heppnast svona vel án þeirra.

Fyrsta starfsári UN Women er lokið og við horfum björtum augum til framtíðarinnar.  Margt hefur áunnist í jafnréttisbaráttu undanfarna áratugi en þó er langt í land á sumum sviðum. Mikilvægt er á tímum efnahagsþrenginga í heiminum að skera ekki niður í verkefnum sem miða að valdeflingu kvenna heldur leggja frekari áherslu á slík verkefni, því líkt og Michelle Bachelet framkvæmdastýra UN Women sagði; „Þegar konur eru heilbrigðar, menntaðar og þátttakendur í hagkerfinu, nær ávinningurinn til barna þeirra, samfélaga og þjóða. Fátækt og vannæring minnkar, lífsgæði aukast og hagvöxturinn verður meiri.”

Með kærri kveðju,

Inga Dóra Pétursdóttir

framkvæmdastýra UN Women á Íslandi 

Related Posts