Ársskýrsla landsnefndar UN Women 2014

Heim / Fréttir / Ársskýrsla landsnefndar UN Women 2014

forsíðumyndÁrsskýrsla landsnefndar UN Women á Íslandi er komin út. Líkt og undanfarin ár er ársskýrslan aðeins gefin út á rafrænu formi af umhverfisástæðum.

Hægt er að nálgast skýrsluna hér.

Síðastliðið ár var viðburðarríkt hjá landsnefndinni. Átakinu Örugg borg var ýtt úr vör í nóvember en framlög landsmanna sem söfnuðust runnu til verkefnis í Kígali, Rúanda sem miðar að því að auka öryggi kvenna við störf sín á götumörkuðum. Milljarður rís var haldinn í Hörpu og víðar um land þar sem landsmenn dönsuðu af krafti gegn kynbundnu ofbeldi, landsnefndin stóð fyrir Jafnréttisráðstefnunni „Aukið jafnrétti – aukin hagsæld“ ásamt Festu og Samtökum atvinnulífsins, þar sem Hvatningarverðlaun jafnréttismála voru veitt í fyrsta sinn auk þess sem landsnefndin stóð fyrir og tók þátt í fjölda annarra skemmtilegra samstarfa og viðburða.
Starf samtakanna hefur vaxið ört á undanförnum árum og náði landsnefndin að senda þriðja hæsta framlag allra landsnefnda til UN Women á síðasta ári. Við kunnum styrktaraðilum okkar kærar þakkir fyrir ríkulegan stuðning.
Samtökin halda ótrauð áfram að berjast fyrir mannréttindum kvenna og stúlkna í fátækustu löndum heim því ávinningur kvenna er hagur allra.

Related Posts