Ársskýrsla landsnefndar UN Women 2013

Heim / Fréttir / Ársskýrsla landsnefndar UN Women 2013
ASTI CASC Cambodia Singing MG 6412Ársskýrsla landsnefndar UN Women á Íslandi er komin út á rafrænu formi. Hægt er að nálgast skýrsluna í heild sinni hér.
Síðastliðið ár var viðburðarríkt hjá landsnefndinni. Samtökin stóðu fyrir dansveislu í tilefni alþjóðlega átaksins „Milljarður rís“ og mættu yfir 1000 manns í Hörpu og dönsuðu af lífi og sál gegn kynbundnu ofbeldi í hádeginu. Í nóvember mánuði efndi landsnefndin til Fiðrildafagnaðar í Hörpu til styrktar starfsemi UN Women gegn kynbundnu ofbeldi, allur ágóði af viðburðinum rann til Styrktarsjóðs Sameinuðu þjóðanna til afnáms ofbeldis gegn konum. Fögnuðinum fylgdi metnaðarfull herferð þar sem andlit þekktra íslenskra kvenna var skeytt saman við andlit indverskra kvenna sem lifað hafa af sýruárás. Herferðin vakti mikla athygli og var m.a. tilefnd til ÍMARK-verðlauna.
Starf landsnefndarinnar hefur vaxið ört á undanförnum árum, styrktaraðilum Systralagsins fjölgaði til muna á síðasta ári og voru rúmlega 3600 í lok síðasta árs. Þá tókst landsnefndinni að auka framlög til verkefna á vegum UN Women um tæp 60 prósent frá fyrra ári.  Landsnefnd UN Women kann styrktaraðilum sínum kærar þakkir fyrir ríkulegan stuðning á árinu 2013.
Landsnefnd UN Women sinnti jafnframt innleiðingu og kynningu á Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact hérlendis. Í lok árs höfðu 14 íslensk fyrirtæki skrifað undir sáttmálann, en með undirskrift skuldbinda fyrirtæki að hafa jafnréttismál og samfélagsábyrgð að leiðarljósi í sinni starfssemi.
Landsnefndin og utanríkisráðuneytið áttu í farsælu samstarfi á síðastliðnu ári. Samstarfssamningur UN Women og utanríkisráðuneytisins var endurnýjaður árið 2012 til þriggja ára. Samkvæmt samningnum veitir ráðuneytið landsnefndinni styrk til að tryggja rekstur skrifstofunnar og er  hann félaginu ómetanlegur. Á móti sinnir landsnefndin fræðslu friðargæsluliða og sérfræðinga á vettvangi um jafnréttismál með sérstaka áherslu á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 er varðar konur, frið og öryggi.
Samtökin munu halda ótrauð áfram að berjast fyrir mannréttindum og auknu jafnrétti kvenna og stúlkna í fátækustu löndum heim því þróun í þágu kvenna er allra hagur.
Related Posts