Þann 25. júlí síðastliðinn hófst á vegum UN Women átak gegn kynbundnu ofbeldi sem kallast Appelsínuguli dagurinn. Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna og UN Women hafa tileinkað 25. dag hvers mánaðar baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi og er markmið átaksins að knýja á um afnám alls ofbeldis gegn konum og stúlkum.
Mun átakið standa yfir til 25. nóvember þegar því lýkur á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi.
Átakið fór vel af stað og vakti strax mikla athygli almennings og fjölmiðla. Fjöldi fólks sendi samtökunum myndir af sér í appelsínugulum skrúða og voru þær birtar á Fésbókarsíðu UN Women.
Leikurinn var endurtekinn að mánuði liðnum og þann 25. ágúst var það miðbær Reykjavíkur sem var málaður appelsínugulur. Að þessu sinni var ákveðið að beina sjónum að aðstæðum kvenna í Afganistan sem taldar eru þær verstu í heiminum en nýverið gaf UN Women út harðorða yfirlýsingu þar sem ofbeldi gegn konum í landinu var fordæmt. Verslunareigendur á Laugavegi og nærliggjandi götum tóku þátt í átakinu með því að sveipa búðir sínar appelsínugulum blæ og skapaði það skemmtilega stemmningu í miðbænum. Tvær verslanir, Móðir, kona, meyja og Nostalgía, bættu um betur og gáfu UN Women á Íslandi hlutfall af söluhagnaði dagsins. Auk þess var mikið um dýrðir í verslun Nostalgíu þar sem búrkuklæddar konur vöktu athygli á stöðu kvenna í Afganistan, götukynnar UN Women kynntu starfið og tónlistarkonan Elín Ey skemmti gestum og gangandi.
Það er vægt til orða tekið að segja að starfskonur UN Women á Íslandi séu djúpt snortnar yfir því frábæra samstarfi sem samtökin áttu við verslanirnar tvær og því framlagi sem þær veittu UN Women. Einnig vill UN Women lýsa yfir miklu þakklæti til allra annarra sem tóku virkan þátt í átakinu um leið og við minnum á næsta Appelsínugula dag þann 25. september.