fbpx

Áhrif loftslagsbreytinga leggjast af meiri þunga á konur og stúlkur

Heim / Fréttir / Áhrif loftslagsbreytinga leggjast af meiri þunga á konur og stúlkur

UN Women og skoska heimastjórnin senda út ákall til þjóðarleiðtoga heimsins á Loftslagsráðstefnunni (COP26) í Glasgow. Þar segir að baráttan gegn loftslagsbreytingum er nátengd baráttunni  fyrir bættum réttindum kvenna og stúlkna.

Á nýafstaðinni loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP26) sem haldin var í Glasgow í Skotlandi í byrjun nóvember, var mikið fjallað um að leggja þurfi aukna áherslu á konur og stúlkur í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

UN Women og skoska heimastjórnin sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í lok ráðstefnunnar þar sem leiðtogar aðildaríkja Sþ voru hvattir til að beita sér í þágu jafnréttis svo takmarka megi áhrif loftslagsbreytinga.

Nátengd baráttunni gegn kynbundnum ójöfnuði

Í yfirlýsingunni segir að baráttan gegn loftslagsbreytingum sé nátengd baráttunni gegn kynbundnum ójöfnuði. Áhrif loftslagsbreytinga leggjast af meiri þunga á konur og stúlkur og þá sérstaklega þær sem búa í fátækari ríkjum heims. Viðbragðsáætlanir þurfa því að taka tillit til þátta á borð við kyn, aldur, búsetu og skerðingu eigi þær að skila árangri.

„Þau sem menga minnst verða verst fyrir barði loftslagsbreytinga. Þeirra á meðal eru konur og stúlkur í fátækari ríkjum heims. Stúlkur eru líklegri til að verða teknar úr námi og konur ólíklegri en karlmenn til að finna nýja atvinnu vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Það er gríðarlega mikilvægt verkefni að tryggja að konur og stúlkur séu einnig í forystu hlutverki þegar kemur að lausnum vegna loftslagsbreytinga. Við þurfum að gera meira til að tryggja jöfnuð og jafna þátttöku kvenna og stúlkna,“ sagði Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands.

Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women, tók undir orð Sturgeon. Bahous sagði að markmiðinu um að takmarka hlýnun jarðar við 1,5 gráðu verði ekki náð nema konur og stúlkur verði með í ráðum og fái sæti við samningaborð heims.

„Þessi yfirlýsing er mikilvægt tól í að viðhalda þeim meðbyr sem við höfum. Konur og stúlkur þurfa að taka forystu í nýsköpun og viðbragði við loftslagsbreytingum. Ég hvet alla kvenleiðtoga að taka skýra afstöðu og undirrita yfirlýsinguna,“ sagði Bahous.

Related Posts