
Fyrir ári var UN Women að slíta barnskónum en nú erum við komin á fulla ferð. Við höfum afrekað mikið á stuttum tíma og ég er stolt af okkur. Það sem einkenndi alþjóðamál árið 2011 var tvennt, annars vegar arabíska vorið og svo efnahagskreppan. Konur hafa verið þátttakendur og fórnarlömb í hvoru tveggja.
Sex málefni hafa verið sett í forgang fyrir árið 2012. Hið fyrsta er að auka pólitíska þátttöku kvenna og styrkja þær til leiðtoga-þátttöku. Við höfum nú þegar stutt konur í Egyptalandi með stofnun Kvennabandalags Egyptalands, kallað eftir aðgerðum stjórnvalda í Arabaríkjunum og veitt fjármuni til frekari aðgerða fyrir konur á svæðinu. Við studdum 25 ríki við pólitískar endurbætur til að fá fleiri konur í framboð og til að kjósa. Á þessu ári munum við styðja 52 ríki við hið sama.
Í öðru lagi munum við vinna að því að styðja efnahagslegar endurbætur kvenna. Án þeirra getur efnahagurinn ekki orðið eins og best er á kosið, en samt sem áður eru yfir 800 milljónir kvenna án menntunar, og þjálfunar til þess að taka þátt í efnahagslífinu af fullum krafti. Árið 2011 studdum við til dæmis konur af erlendum uppruna í Marokkó og gerðum þeim kleift að erfa landssvæði til jafns við karlmenn. Á þessu ári munum við halda áfram að veita þjálfun, félagslega vernd og jafnan rétt kvenna til tækifæra og eigna.
Í þriðja lagi munum við berjast gegn kynbundnu ofbeldi. Ofbeldi gegn konum er ekki einungis vandamál kvenna heldur þjóðfélagsins í heild. Slíkt ofbeldi er ekki óumflýjanlegt og það er hægt að koma í veg fyrir það með réttum aðgerðum.
Á liðnu ári gaf UN Women út skýrslu um stöðu kvenna í heiminum sem skýrði frá því að lög margra ríkja dæma konur úr leik á ýmsum sviðum. Með lagalegum endurbótum, fleiri kvenkyns dómurum og löggæslukonum, fá konur að njóta réttlætis í lagaumhverfinu. Við höfum afrekað að ná fram harðari dómum fyrir sýruárásir í Kambódíu, fleiri örugg svæði fyrir stúlkur í Sambíu og varnir gegn mansali á landamærum Brasilíu og Paragvæ.
Fjórða forgangsatriðið er að auka hlut kvenna í friðarviðræðum og uppbyggingu samfélaga eftir átök. Konur eru ekki bara fórnarlömb stríðsátaka, þær eru líka leiðtogar frelsis og lýðræðis eins og við sáum þegar þrjár konur hlutu friðarverðlaun Nóbels. Árið 2011 voru áætlanir gerðar um hlutverk kvenna í friðarumleitunum í Georgíu, Serbíu og Bandaríkjunum. Við studdum konur til að sækja alþjóðalegar ráðstefnur í Afghanistan og Suður-Súdan og yfir 250 konur í Afríku og Asíu voru þjálfaðar í sáttasamningum.
Í fimmta lagi skulu konur jafnt sem karlar njóta góðs af aðgerðum sem og fjárhagsáætlunum, þar sem slíkt endurspeglar pólítísk forgangsatriði hvers ríkis. Í fyrra aðstoðaði UN Women 50 lönd við að endurskipuleggja áætlanir sínar þannig að jafnréttis væri gætt, m.a. í Ekvador, Úrúgvæ og Rúanda. Á þessu ári munum við halda þessum aðgerðum áfram ásamt því að gæta þess að konur taki þátt í ferlinu til að breytingarnar verði til langframa.
Það sjötta og síðasta er að auka samstarf og ábyrgð hjá stofnunum SÞ þegar kemur að jafnrétti kynjanna. Það starf mun UN Women leiða að beiðni ríkisstjórna aðildarríkja SÞ.
Það sem ég mun leggja mesta áherslu á árið 2012 er að efla þátt kvenna í efnahagslífinu og í stjórnmálum. Þessi ákvörðun var tekin bæði að kröfu kvenna um allan heim og vegna umbreytinganna á sviði stjórnmála, efnahagsmála og félagsmála. En þetta getur UN Women ekki afrekað ein og sér. Jafnrétti kynjanna veltur á stuðningi valdhafa heimsins, á fjölmiðlum og á sameiginlegu átaki allra stofnana SÞ og annarra þróunarsamvinnustofnanna. Árið 2011 söfnuðum við 235 milljónum bandaríkja dollara sem er 33% aukning frá 2010, en betur má ef duga skal því við stefnum að því að safna 700 milljónum dollara á þessu ári.
Við köllum eftir dyggum stuðningi við að efla mátt kvenna og jafnrétti kynjanna. Á þessum tímum óvissu og örbirgðar megum við ekki láta niðurskurð bitna á framförum kvenréttinda. Við þurfum ekki aðeins að halda því í horfinu sem áunnist hefur, heldur halda áfram að taka framförum. Með auknum kröfum um réttlæti, pólitískum breytingum og kosningum í nánd höfum við tækifæri til að opna dyrnar fyrir konur. Við höfum ekki lengur efni á að halda konum niðri, við þurfum á visku og hæfileikum kvenna að halda í heiminum, sama hvort um er að ræða fæðuöryggi, efnahagslegar framfarir, heilsu eða frið og öryggi.
Michelle Bachelet framkvæmdastýra UN Women