Afganskar konur bera þyngstu byrðina eftir jarðskjálftann 

Heim / Fréttir / Afganskar konur bera þyngstu byrðina eftir jarðskjálftann 

Ónýtt heimili í Nurgal, eitt af þeim héruðum sem urðu verst úti í skjálftanum. Mynd/UN Women

Konur og stúlkur eru meirihluti þeirra sem hafa farist í jarðskjálftanum sem reið yfir austurhluta Afganistan í byrjun mánaðar. Þær glíma nú við hungur, húsnæðisleysi og vaxandi ofbeldi. Þetta er á meðal þess sem Susan Ferguson, sérstakur fulltrúi UN Women í Afganistan, kom inn á í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér nýverið.

Konur og stúlkur bera þyngstu byrðarnar vegna afleiðinga jarðskjálftans, en skjálftinn var einn sá mannskæðastasti sem orðið hefur í landinu. Konur á hamfærasvæðinu standa frammi fyrir langvarandi neyð ef ekki berst aukin aðstoð. Konur og stúlkur eru yfir helmingur þeirra sem hafa látist eða slasast og 60% þeirra sem enn er saknað.

 

Aukin hætta á ofbeldi og misnotkun

Ofan á sorgina og missinn sem þær hafa orðið fyrir standa konur á hamfarasvæðinu frammi fyrir nýjum áskorunum, þar á meðal aukinni hættu á ofbeldi og misnotkun. Auk þess sem aðgengi að stuðningi og þjónustu er mjög takmarkað.

„Þegar ég heimsótti þorp í Kunar-héraði í síðustu viku sá ég að margar fjölskyldur hafast enn við í tjöldum eða undir berum himni. Öll hreinlætisaðstaða og vatnsból eyðilögðust í skjálftanum. Þetta þýðir að konur og stúlkur þurfa að ganga langar vegalengdir til að komast á salerni eða sækja vatn, sem eykur hættuna á ofbeldi. En á þessu svæði er einnig fjöldi jarðsprengja. Hættan á ofbeldi nær einnig inn á heimilin. Kynbundið ofbeldi eykst í kjölfar hamfara. Nokkuð sem má rekja til þess mikla álags sem samfélögin glíma við vegna flótta, atvinnumissis og fleira,“ segir í yfirlýsingunni.

„Heimili þar sem konur eru einu fyrirvinnurnar verða fyrir mestum áhrifum. Við vitum um að minnsta kosti 463 slík heimili á hamfarasvæðunum. Í daglegu lífi, í þessu menningarlega samhengi, eiga þessar konur nú þegar í stöðugri baráttu til þess eins að lifa af og framfleyta fjölskyldum sínum. Nú, í kjölfar ringulreiðarinnar og óvissunnar sem
vegna skjálftans, verður margfalt erfiðara fyrir þær að sjá fyrir börnunum sínum og finna öruggt skjól.“

 

Óléttar konur og konur með börn á brjósti verða einnig fyrir áhrifum

Mikilvægt er að konurnar á hamfarasvæðinu hafi hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu. Vegna banns talíbanastjórnarinnar við því að konur starfi fyrir frjáls félagssamtök og stundi háskólanám, ásamt ferðatakmörkunum sem yfirvöld hafa sett er erfitt fyrir konur að sækja slíka þjónustu í Afganistan.

 

Þátttaka kvenna í mannúðarstarfi lykilatriði

„Það er sérstaklega mikilvægt að konur gegni mannúðarstörfum. Aðeins þannig er hægt að tryggja að konur og stúlkur hafi öruggan aðgang að þeim stuðningi sem þær þurfa – sem verður að vera veittur af konum, fyrir konur. Það er engin önnur leið til að veita aðstoð á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Án kvenkyns hjálparstarfsfólks munum við einfaldlega ekki geta mætt þörfum kvenna og stúlkna á næstu vikum og mánuðum. Þó að enn sé hlýtt veður á jarðskjálftasvæðum, nálgast veturinn hratt. Lífsskilyrði verða þá erfiðara og sömuleiðis aðgengi að mannúðaraðstoð. Þess vegna óskar UN Women nú eftir 2,5 milljónum Bandaríkjadala til að efla 6–12 mánaða neyðar- og endurreisnarviðbragðsáætlun.

Related Posts