Aðalfundur UN Women á Íslandi, verður haldinn fimmtudaginn 28. apríl 2022, kl. 17:30, í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, að Laugavegi 77, 4. hæð.
Á dagskrá fundarins verða eftirfarandi liðir:
Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður UN Women á Íslandi skýrir frá viðfangsefnum félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
Rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir liðið starfsár eru kynntir af gjaldkera stjórnar og lagðir fram til samþykktar.
- Stjórn leggur til að ársreikningur félagsins fyrir fjárhagsárið sem lauk 31. desember 2021 verði samþykktur eins og hann er lagður fram.
Kjör stjórnar og formanns
Kjör endurskoðanda
- Stjórn leggur til að Guðni Þór Gunnarsson hjá Íslenskir endurskoðendur ehf verði kosinn sem endurskoðandi félagsins og að honum verði greidd þóknun samkvæmt útgefnum reikningi.
Önnur mál: umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni og tillögur sem löglega eru upp bornar.
Félagar UN Women á Íslandi sem greitt hafa félagsgjöld sl. ár eða eru mánaðarlegir styrktaraðilar UN Women á Íslandi og hafa greitt í minnst sex mánuði, hafa rétt á að bjóða sig fram til stjórnar og hafa atkvæðisrétt. Við minnum á að framboð til stjórnar þarf að berast þremur virkum dögum fyrir aðalfund (25. apríl) á stella@unwomen.is
Reykjavík, 13. apríl 2022
f.h. stjórnar UN Women á Íslandi
Arna Grímsdóttir

