Aðalfundur UN Women á Íslandi 2026

Heim / Fréttir / Aðalfundur UN Women á Íslandi 2026

Aðalfundur UN Women á Íslandi, verður haldinn ‏þriðjudaginn 21. apríl 2026, kl. 17:30, í Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42, 105 Reykjavík. 

Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundastörf: 
  • Kosning fundarstjóra og fundarritara. 
  • Formaður UN Women á Íslandi skýrir frá viðfangsefnum félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári. 
  • Rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir liðið starfsár eru kynntir af fjármála- og rekstrarstýru UN Women á Íslandi og lagðir fram til samþykktar. 

Stjórn leggur til að ársreikningur félagsins fyrir fjárhagsárið sem lauk 31. desember 2025 verði samþykktur eins og hann er lagður fram. 

  • Kjör stjórnar og formanns. 
  • Kjör endurskoðanda. 

Stjórn leggur til að Guðni Þór Gunnarsson hjá Íslenskir endurskoðendur ehf verði kosinn sem endurskoðandi félagsins og að honum verði greidd þóknun samkvæmt útgefnum reikningi. 

  • Önnur mál: umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni og tillögur sem löglega eru upp bornar. 

Félagar UN Women á Íslandi sem greitt hafa félagsgjöld sl. ár og mánaðarlegir styrktaraðilar UN Women á Íslandi sem hafa greitt í minnst sex mánuði, hafa rétt á að bjóða sig fram til stjórnar og hafa atkvæðisrétt. Við minnum á að framboð til stjórnar þarf að berast þremur virkum dögum fyrir aðalfund (í síðasta lagi 16. apríl 2026) á stella@unwomen.is. 

Við hlökkum til að sjá ykkur! 

Reykjavík 07. apríl 2026 

f.h. stjórnar UN Women á Íslandi 

Anna Steinsen   

Related Posts