
Aðalfundur UN Women á Íslandi, verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2025, kl. 17:30, í Mannréttindahúsinu að Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundastörf:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Formaður UN Women á Íslandi skýrir frá viðfangsefnum félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
- Rekstrar- og efnahagsreikningar fyrir liðið starfsár eru kynntir af fjármála- og rekstrarstýru UN Women á Íslandi og lagðir fram til samþykktar.
Stjórn leggur til að ársreikningur félagsins fyrir fjárhagsárið sem lauk 31. desember 2024 verði samþykktur eins og hann er lagður fram.
- Kjör stjórnar og formanns.
- Kjör endurskoðanda.
Stjórn leggur til að Guðni Þór Gunnarsson hjá Íslenskir endurskoðendur ehf verði kosinn sem endurskoðandi félagsins og að honum verði greidd þóknun samkvæmt útgefnum reikningi.
- Önnur mál: umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni og tillögur sem löglega eru upp bornar.
Félagar UN Women á Íslandi sem greitt hafa félagsgjöld sl. ár og mánaðarlegir styrktaraðilar UN Women á Íslandi sem hafa greitt í minnst sex mánuði, hafa rétt á að bjóða sig fram til stjórnar og hafa atkvæðisrétt. Við minnum á að framboð til stjórnar þarf að berast þremur virkum dögum fyrir aðalfund (í síðasta lagi 25. apríl 2025) á stella@unwomen.is.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Reykjavík 14. apríl 2025
f.h. stjórnar UN Women á Íslandi
Anna Steinsen

