Kæru velunnarar UN Women,
aðalfundur félagsins verður haldinn þann 29. apríl klukkan 20.00 í miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Laugavegi 176, 5. hæð.

Allir eru velkomnir á fundinn en félagar UN Women sem hafa greitt félagsgjöld sl. ár eða greitt í Systralag samtakanna sl. 6 mánuði hafa rétt á að bjóða sig fram til stjórnar og hafa atkvæðisrétt. Minnum á að framboð til stjórnar þarf að berast þremur dögum fyrir aðalfund.
Hvetjum alla áhugasama til að láta sjá sig!
Dagskrá fundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Formaður UN Women á Íslandi skýrir frá viðfangefnum félagins og rekstri þess á liðnu starfsári.
- Rekstrar- og efnahagsreikningar landsnefndar fyrir liðið starfsár eru kynntir og lagðir fram til samþykktar.
- Kjör stjórnar og formanns.
- Kjör endurskoðanda.
- Önnur mál: Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni og tillögur sem löglega eru upp bornar. Samkvæmt lögum félagsins skulu tillögur að breytingum laga félagsins sendar með aðalfundarboði.
Stjórn UN Women á Íslandi leggur til eftirfarandi breytingar á 7. grein laga Landsnefndar UN Women á Íslandi sem eru feitletraðar í texta:
Tillaga stjórnar er því að 7. gr laga sé eftirfarandi:
Stjórn er skipuð 11 stjórnarmönnum og er stjórn kosin til eins árs í senn. Formaður er kosinn í sérstakri kosningu á aðalfundi. Stjórn skal á fyrsta fundi sínum skipa varaformann og gjaldkera.
Stjórn hefur umboð til að ráða framkvæmdastýru. Aðrir starfsmenn, s.s. verkefnisstjórar, ráðgjafar o.þ.h., skulu ráðnir af stjórn eftir þörfum.
Stjórnin fer með málefni félagsins milli aðalfunda, gerir starfsáætlun, veitir prókúru fyrir félagið og skipar í starfsnefndir.
Stjórnarfundur er lögmætur ef 6 stjórnarmenneru mættir. Á stjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum. Séu atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns.
Stjórn fundar að jafnaði 9 sinnum á ári. Halda skal stjórnarfund krefjist einhver stjórnarmanna þess. Framkvæmdastýra landsnefndar situr alla fundi. Aðrir skulu sitja fundi stjórnar eftir þörfum.

