Ríflega 3000 Íslendingar tóku þátt í femínískri fljóðbylgju um land allt þann 14. febrúar síðastliðinn í tilefni af alþjóðlega viðburðinum „Milljarður rís“. Um heim allan eða í rúmlega 200 löndum tóku menn, konur og börn þátt og dönsuðu fyrir réttlæti og mannréttindum kvenna.
Dansað var í öllum fylkjum Bandaríkjanna, í Evrópu,í Asíu, Afríku og víðar. Á Indlandi dansaði fólk í öllum fylkjum landsins og fagnaði þeirri vakningu og framfaraskrefum sem hafa átt sér stað í jafnréttismálum á undanförnu ári. New York borg tilkynnti opinberlega að 14.febrúar yrði kenndur við „Milljarður rís“. Það er ósk samtakanna að slíkt hið sama verði gert hér á landi.
„Það var magnað að upplifa þennan samtakamátt,“ segir Soffía Sigurgeirsdóttir starfandi framkvæmdastýra UN Women á Íslandi en samtökin stóðu fyrir viðburðinum hér á landi. „Fólk vill sjá breytingar og búa í samfélagi þar sem konur eru ekki beittar ofbeldi.
Milljarður rís var haldinn í Hörpu þar dönsuðu um 2500 manns undir taktvissri tónlist Dj Margeirs einnig kom Högni Egilsson dansgestum á óvart er hann steig á stokk og tók lagið öllum til mikillar ánægju. Jafnframt var dansað í Hofi á Akureyri, í Menntaskólanum á Ísafirði og félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði og í Vestmannaeyjum.
UN Women á Íslandi vill þakka Hörpu, tónlistarhátíðinni Sónar, Reykjavík Lunch Beat, Hofi, Menntaskólanum á Ísafirði og félagsheimilinu á Herðubreið.
Landsnefndin þakkar eftirfarandi aðilum kærlega fyrir ómetanlegan stuðning: Diljá Ámundadóttir, Ámundi Sigurðsson, Lunch Beat á Seyðisfirði, Þórdís Sif Sigurðardóttir, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Matthildur Helgadóttir Jónudóttir, Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Dóra Hlín Gísladóttir, Eygló Jónsdóttir, Henna-Riikka Nurmi, Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir, Arnheiður Steinþórsdóttir, Harpa Oddbjörnsdóttir, Gerður Ósk Hjaltadóttir, Óttarr Proppé, Margeir Steinar Ingólfsson, Högni Egilsson, Salka Margrét Sigurðardóttir, Hörður Ásbjörnsson, Kristín Sandra Karlsdóttir, Ásdís Birna Gylfadóttir, Bryndís Silja Pálmadóttir, Ragnheiður Freyja, Alda Elísa Andersen, Kristrún Halla Gylfadóttir, Auður Edda Erlendsdóttir, Bryndís, Snæfríður Gunnarsdóttir, Kristín María Erlendsdóttir, Snædís Gígja Snorradóttir, Ída Finnbogadóttir, Fríða Hjartardóttir, Ágústa Björg Kettler Kristjánsdóttir, Hörn Heiðarsdóttir OG Auðunn Lúthersson.

