FO-húfan 2026 MÆTT!

Heim / Fréttir / FO-húfan 2026 MÆTT!

Hulunni hefur verið svipt af árlegri FO-herferð UN Women á Íslandi. Varan í ár er svört húfa með bláu FO-merki. Átakið styður við verkefni UN Women í Palestínu‏, bæði á Gaza og á Vesturbakkanum. Húfurnar eru framleiddar af Varma og kosta 5.900 kr.

FO-herferðin er flaggskip UN Women á Íslandi og hafa yfir 100 milljónir safnast frá árinu 2015. Sem fyrr leggur fjöldi fólks málefninu lið með því að sitja fyrir í herferðarefni átaksins og veitir UN Women á Íslandi ómetanlegan stuðning. Ljósmyndarinn Sunna Ben myndar herferðarefni átaksins. Aðspurð segir hún ánægjulegt að geta tekið þátt í því að gera FO-herferð ársins að veruleika.

„Sjálf hef ég fylgst með FO-verkefni UN Women síðan það hóf göngu sína og oftar en ekki stutt hinar árlegu safnanir. Eins hef ég dást að því hve áberandi FO er á Íslandi allan ársins hring, hversu miklu hefur tekist að safna ár hvert og auðvitað einna helst af því hvað það er pönkaður baráttuandi í því að merkja sig með fokk ofbeldi, það er auðvelt að standa með því slagorði! Söfnun ársins er svo fyrir Palestínu. Frjáls og örugg Palestína er málsstaður sem ég brenn fyrir og vil gera allt sem ég get til að styðja við,“ segir hún.

 

Mikilvægt að styðja við þolendur

„Þegar samfélög upplifa átök, hamfarir eða efnahagskreppur eykst álag á fjölskyldur og tíðni kynbundins ofbeldis. Við höfum séð þetta raungerast hér á Íslandi í Covid-19 og nú á Gaza og Vesturbakkanum. Það er því mikilvægt að styðja við þolendur ofbeldis í Palestínu og um leið reyna að tryggja að raddir palestínskra kvenna hljóti hljómgrunn nú þegar verið er að reyna að byggja upp úr rústunum,” segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Meira en 33.000 konur og stúlkur hafa verið drepnar á Gaza frá því í október 2023. Þó árásum hafi fækkað með tilkomu vopnahlés, er ekki hægt að tala um að friður ríki í Palestínu; hvorki á Gaza, né á Vesturbakkanum.

Vopnahléið hefur ‏þó veitt hjálpar- og mannúðarsamtökum glugga til að koma neyðaraðstoð inn á Gaza og liggur mikið á að koma vistum inn á svæðið sem hraðast.

 

Hverju þurfa konur og stúlkur á Gaza nauðsynlega á að halda? 

Í stuttu máli skortir ‏þær allt. En konur á svæðinu hafa nefnt nokkur forgangsatriði:

  1. Mat og hreint vatn en einnig aðstöðu til að elda og geyma eigur sínar. Þær þurfa sápu og hreinlætisvörur til að geta þvegið sig og flíkur sínar. Þær þurfa einnig öruggt og mannsæmandi skjól
  1. Læknisaðstoð og lyf fyrir börn sín‏. Mörg þjást af magapestum og niðurgangi, sýkingum og hita. Heilbrigðisþjónusta er bráðnauðsynleg, sérstaklega fyrir barnshafandi konur og nýbakaðar mæður sem eru of vannærðar til að geta haft barn sitt á brjósti.
  1. Dömubindi og aðstöðu til að þvo sér á meðan þær eru á blæðingum.
  1. Beinum fjárframlögum að halda til að geta keypt helstu nauðsynjar – sérstaklega þær konur sem eru einu fyrirvinnur fjölskyldunnar.
  1. Vernd gegn kynbundnu ofbeldi. Tíðni kynbundins ofbeldis eykst verulega í neyðaraðstæðum þegar fjölskyldur eru á flótta, friðhelgi einkalífs glatast og öryggisnet samfélagsins hverfur.
  1. Sálræna aðstoð og félagslegan stuðning til að vinna úr áföllunum, sorginni og ofbeldinu sem þau hafa orðið fyrir og orðið vitni að.

Herferðin er styrkt af Verði tryggingum, sem stendur straum af öllum framleiðslukostnaði FO-vörunnar og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allar tekjur af sölunni út til verkefna UN Women í Palestínu.

Myndir/Sunna Ben

Related Posts