Ljósaganga UN Women Íslandi: Stafrænt ofbeldi er ofbeldi!

Heim / Fréttir / Ljósaganga UN Women Íslandi: Stafrænt ofbeldi er ofbeldi!

Herferð UN Women fyrir 16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi beinir sjónum að stafrænu ofbeldi í ár.

Ljósa­ganga UN Women á Íslandi fer fram þriðjudaginn 25. nóvember kl. 17:00, á Alþjóðleg­um bar­áttu­degi Sam­einuðu þjóðanna gegn kyn­bundnu of­beldi. Dag­ur­inn mark­ar jafnframt upp­haf 16 daga átaks gegn kyn­bundnu of­beldi, sem UN Women á Íslandi stendur að ásamt fjölda annarra félagasamtaka. Áhersla átaksins í ár er á stafrænt ofbeldi.

Gengið er í minningu baráttukonunnar Ólafar Töru Harðardóttur. Fjölskylda Ólafar Töru, munu leiða gönguna ásamt Stellu Samúelsdóttur, framkvæmdastýru UN Women á Íslandi, og fulltrúum Bjarkarhlíðar, Druslugöngunnar, Íslandsdeildar Amnesty International, Kvenréttindafélags Íslands, Kvennaathvarfsins, Rótarinnar, Stígamóta, Vitundar og ÖBÍ.

„Ný gögn sýna að stafrænt ofbeldi gegn konum og stúlkum er jafn útbreitt, ef ekki algengara, en kynbundið ofbeldi. Nærri tvær af hverjum þremur konum í heiminum hafa orðið fyrir stafrænu kynbundnu ofbeldi. Búið er að kortleggja yfir fjörutíu ólíkar tegundir stafræns ofbeldis, en tækninýjungar skapa sífellt fleiri miðla og möguleika á stafrænu ofbeldi. Framfarirnar eru slíkar að lagabreytingar virðast alltaf vera skrefinu á eftir. Þess vegna er svo mikilvægt að efla forvarnir og styðja almennilega við ‏‏þolendur svo ‏þau fái ‏‏þá ‏þjónustu og aðstoð sem ‏‏þau ‏þurfa, ‏þeim að kostnaðarlausu,“ segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

 

Afleiðingar stafræns ofbeldis gífurlegar

Áhersla alþjóðlega átaksins í ár er á stafrænt ofbeldi undir yfirskriftinni “Ending Digital Violence Against All Women and Girls”. Tækniframfarir hafa skapað ný rými þar sem ofbeldi og áreitni þrífst óáreitt. Nærri 2 af hverjum 3 konum í heiminum hafa orðið fyrir stafrænu kynbundnu ofbeldi. Stafrænt ofbeldi hefur afleiðingar – alvarlegar afleiðingar. Það hefur djúpstæð áhrif á heilsu, líðan og tækifæri þolenda til þátttöku í samfélaginu.

Að sögn Simu Bahous, framkvæmdastýru UN Women, takmarkast stafrænt ofbeldi ekki aðeins við stafræn rými. Það smitast yfir í raunveruleikann, veldur ótta, þaggar niður í konum og aktívistum og í verstu tilfellum leiðir til líkamlegs ofbeldis og kvennamorða.

Mikilvægt er að lög um stafrænt ofbeldi þróist samhliða tækninni til að tryggja að réttarkerfið verndi konur og stúlkur bæði á netinu og utan þess.

  • UN Women á Íslandi hvetur stjórnvöld til ‏þess að auka fjármagn til félagasamtaka sem styðja við þolendur starfræns ofbeldis
  • UN Women á Íslandi kallar eftir ‏því að foreldrar, menntastofnanir og samfélög efli stafrænt læsi og netöryggi í ‏þeim tilgangi að auka forvarnir og uppræta stafrænt ofbeldi
  • Stafræn rými þarf að skilgreina sem raunveruleg rými, þar sem lög og reglur um mannréttindi og almennt öryggi eiga að gilda
  • Þar til stafræn rými verða örugg rými fyrir öll, verður raunverulegu jafnrétti ekki náð

 

Fjöldi bygginga verða lýstar upp í appelsínugulum lit í tilefni átaksins, en appelsínuguli liturinn táknar framtíð án ofbeldis og er litur alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi.

Related Posts