16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Heim / Fréttir / 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Tuttugasti og fimmti nóvember er alþjóðlegur baráttudagur Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundu ofbeldi og hefur verið haldinn hátíðlegur hér á landi í yfir áratug. Ljósaganga UN Women er orðinn fastur liður á þessum degimorgunverarfundur_og_ljsaganga_054.

Dagurinn markar jafnframt upphaf hins alþjóðlega 16 daga átaks gegn kynbundnun ofbeldi sem UN Women á Íslandi ásamt öðrum félagasamtökum eru í forsvari fyrir á Íslandi. Yfirskrift Ljósagöngunnar þetta árið er Heimilisflriður – Heimsfriður.

Ljósagangan hefst kl 19 við Þjóðmenningarhúsið á Hverfisgötu og er gengið saman að Sólfarinu við Sæbraut. Listir, friðarsúlan og samhugur munu einkenna gönguna í ár líkt og undanfarin ár. Ljósberarnir sem leiða gönguna í ár eru: Óttar Norðfjörð, Thelma Ásdísardottir, Gunnar Hersveinn Sigursteinsson, Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, Árni Beinteinn Árnason, Elín Hirst og Berglind Guðmundsdóttir.

Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa lagt baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi lið og varpað þannig birtu á þennan skuggalega málaflokk.

Kerti verið seld á staðnum á 500 krónur.

UN Women hvetur sem flesta til þess að mæta í gönguna!

Related Posts