fbpx

UN Women fagnar niðurstöðu Alþjóðlega sakamáladómstólsins í máli stríðsherra

Heim / Fréttir / UN Women fagnar niðurstöðu Alþjóðlega sakamáladómstólsins í máli stríðsherra

 

Stríðsherrann Bosco Ntaganda var þann 8. júlí sakfelldur fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni í Austur-Kongó á árunum 2002-2003. Ntaganda var dæmdur sekur í 13 liðum fyrir stríðsglæpi og í 5 liðum fyrir glæpi gegn mannkyninu.

Jafnréttisstofnun Sameinuðu þjóðanna, UN Women, fagnar niðurstöðu Alþjóðlega sakamáladómstólsins. Í yfirlýsingu frá Phumzile Mlambo-Ngcuka, framkvæmdastjóra UN Women, segir að sakfellingin sé gríðarlega þýðingarmikil. Verði hún staðfest er það í fyrsta sinn sem Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn sakfellir í kynferðisglæpamáli. Niðurstaða dómstólsins er jafnframt merkileg fyrir þær sakir að þetta er í fyrsta sinn sem Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn dæmir sakborning sekan fyrir kynlífsánauð og í fyrsta sinn sem sakborningur er fundinn sekur fyrir að beita eigin hermenn kynferðislegu ofbeldi.

Í yfirlýsingu UN Women kemur fram að þó kynferðisglæpir séu ekki nýnæmi, heyri það til undantekninga að sakfellt sé í slíkum málum. Þar segir einnig að UN Women hafi sent sérfræðing í kynferðis- og kynbundnum ofbeldisglæpum til að aðstoða saksóknara Alþjóðlega sakamáladómstólsins við úrvinnslu gagna í málinu og til að tryggja að sönnunargögn í málinu spillist ekki. UN Women mun áfram vinna náið með sakamáladómstólnum svo hægt sé að draga stríðsglæpamenn til saka samkvæmt Rómarsamþykktinni.

UN Women þakkar þolendum sem báru vitni í málinu gegn Ntaganda fyrir hugrekki sitt. Hvetur stofnunin til þess að þeim og öðrum fórnarlömbum stríðsins í Austur-Kongó verði veittur viðeigandi stuðningur og aðstoð svo þau megi endurreisa líf sitt og geti unnið að því að koma á kynjajafnrétti í nærsamfélagi sínu.

Related Posts