Þar sem konur eru virkir þátttakendur í atvinnulífi og efnahagslega sjálfstæðar eykst kynjajafnrétti og hagvöxtur samfélaga. Fyrirtæki eru betur rekin og efnahagsleg valdefling kvenna dregur úr fátækt. Eins hefur verið sýnt fram á að fjölgun kvenna í valdastöðum bæti skipulag og skilvirkni við rekstur stórra og smárra fyrirtækja.

En kynbundinn launamunur þjakar enn samfélög heims. Konur þéna enn 24% minna en karlmenn á heimsvísu. Framlag kvenna til hagkerfa heimsins er gríðarlegt sama hvort litið er til viðskipta, landbúnaðar, nýsköpunar eða ólaunaðra umönnunarstarfa heima við. Konur bera oftar ábyrgð á ólaunuðu heimilis- og umönnunarstörfum og verja almennt einni til þremur klukkustundum lengur en karlmenn í slík störf daglega. Konur eru tæplega helmingur allra bænda og framleiða um helming alls matar í heiminum. Engu að síður eru konur innan við 20% landeigenda í heiminum.

UN Women vinnur að því að tryggja og auka aðgengi kvenna að lántöku, markaði, landareignum auk þess að þrýsta á stjórnvöld að tryggja konum erfðaréttindi og öruggt starfsumhverfi á vinnustöðum. UN Women veitir einnig konum frumkvöðlaþjálfun og hagnýt viðskiptanámskeið sem veitir konum réttu verkfærin til að reka fyrirtæki og verða efnahagslega sjálfstæðar. Efnahagsleg valdefling kvenna gerir ekki eingöngu konum kleift að blómstra heldur samfélögum í heild sinni.