fbpx

Fer fjölskyldan á flakk í sumar?

Heim / Fréttir / Fer fjölskyldan á flakk í sumar?

veggmyndMargar konur á flótta eru barnshafandi og dreymir um að fæða börn sín inn í sanngjarnan heim.

Þær hætta lífi sínu til að eiga börn sín í friðsælum aðstæðum og leita meðal annars til Evrópu. Þær ferðast fótgangandi oft að næturlagi í afskekktum héruðum fjarri lögreglu, á óupplýstum leiðum og ómalbikuðum vegum, halda til í niðurníddum lestum á nóttunni, eiga ekki í nein hús venda og búa við stöðugt öryggisleysi. Margar konur eiga börn sín á flótta og í flóttamannabúðum. Konur gefa hvítvoðungum sínum brjóst í litlum tjöldum í nístingskulda yfir veturinn og steikjandi hita frá vori til hausts. Flest ungabarnanna sofa á stöflum af teppum við hlið mæðra sinna.

Sendu SMS-ið KONUR í 1900 (1.900 kr) og bjargaðu lífi þeirra með mæðra- og ungbarnavernd.
„Ég veit ekki hvaða framtíð hann á fyrir sér. Litla barnið mitt er kvalið rétt eins og ég sjálf.“ – segir Mohamad sem flúði frá Aleppo í Sýrlandi til Evrópu. „Framtíð litla sonar míns er glötuð. Miðað við þær aðstæður sem hann fæddist inn í og hefur varið sínu lífi, þá trúi ég því ekki að hann eigi framtíðina fyrir sér. Okkur tókst að flýja stríðið og komast til Evrópu en þegar við komumst loks til Evrópu lokuðust landamærin og hér sitjum við föst. Það eina sem við þráum er að búa við öryggi.“
Hátt í 60 milljónir manna eru á flótta eða á vergangi í heiminum, helmingur þeirra eru konur. Aldrei hafa fleiri konur verið á flótta í heiminum. Neyðarástand ríkir á landamærastöðvum í Evrópu sem einkennist af örvæntingu, ótta og úrræðaleysi. Búið er að loka landamærum í Serbíu og Makedóníu og er fólk nú í auknum mæli sent til Tyrklands. Flest sýrlenskt flóttafólk dvelur í Tyrklandi eða 2.7 milljónir manna og þar af rúm ein og hálf milljón sýrlenskra flóttakvenna.
Talið er að 12% kvenna sem ferðast yfir Miðjarðarhafið séu með barni. Margar eru með börn á brjósti eða ferðast með ungabörn með sér. Gríðarleg aukning hefur orðið á mæðradauða á meðal flóttakvenna síðastliðin ár.
UN Women vinnur hörðum höndum að því að bregðast við neyð kvenna á flótta og mæta þörfum þeirra með sértækri þjónustu í færanlegum heilsugæslustöðvum sem UN Women starfrækir á landamærastöðvum í Makedóníu, Serbíu og Tyrklandi. Færanlegu heilsugæslurnar eru örugg svæði fyrir konur, fullbúnar þverfaglegum teymum samsettum af; lögfræðingi, félagsráðgjafa, lækni, sálfræðingi og túlki sem veita konunum viðeigandi neyðaraðstoð. Heilsugæslurnar færast milli svæða eftir því hvar neyðin er mest hverju sinni og eru opnar sjö daga vikunnar. Með því að starfrækja færanlegar heilsugæslustöðvar fá konur á flótta:
•    Ungbarna- og mæðravernd.
•    Aðgang að þjónustu kvenkyns- kvensjúkdómalækna, -lækna og hjúkrunarfræðinga.
•    Upplýsingar um réttindi sín og þá hættu sem steðjar að konum á flótta.
•    Fatnað, rúm, sængur og hreinlætisvörur.

Neyðin er mikil. Nauðsynlegt er að taka mið af þörfum kvenna svo þær geti gætt barna sinna á þessu hættulega ferðalagi og hægt sé að veita þeim lífsnauðsynlega fæðingarþjónustu og börnum þeirra ungbarnavernd.
Sendu SMS-ið KONUR í 1900 (1.900 kr) og bjargaðu lífi þeirra með mæðra- og ungbarnavernd.

Related Posts