Vefverslun UN Women

Færðu systrum þínum um heim allan von og öryggi þegar þú fjárfestir í gjöf sem bætir líf þeirra.

Með því að gefa gjafabréf UN Women, leggur þú þitt af mörkum á táknrænan hátt við hin ýmsu verkefni UN Women. Gjafabréfin henta við öll tækifæri og eru prentuð á fallegan pappír með persónulegri kveðju.

Gjöfin berst yfirleitt til viðtakanda innan þriggja daga ef send með pósti. Athugið að einungis er hægt a panta gjafabréf UN Women á virkum dögum. Einnig er hægt að kaupa og sækja gjafabréfin á skrifstofu UN Women á Laugavegi 176, 5. hæð. Við tökum ekki við kortum á skrifstofunni. Fyrir jólahátíðina er mikilvægt að panta gjafabréfin fyrir 19. desember.



Vasaklútur sem verndar

Vasaklútur sem verndar

Í Kambodíu styrkir UN Women félagasamtök sem dreifa vasaklútum til farandverkakvenna. Á vasaklútana er búið að sauma neyðarupplýsingar sem auðvelt er að fela en færa konunum upplýsingar um hvert eigi að leita ef brotið er á rétti þeirra í starfi eða í einkalífi.



Kr. 2.000






Neyðarsími fyrir palestínskar konur

Neyðarsími fyrir palestínskar konur

Mörg hundruð stúlkna og kvenna hverfa sporlaust eða deyja árlega í Palestínu vegna svokallaðra heiðursmorða. Þessi morð eru framin af fjölskyldumeðlimum þar sem konur og stúlkur þykja hafa kastað rýrð á heiður fjölskyldunnar. Ástæðurnar geta til að mynda verið „vitlaus“ klæðnaður, skilnaður frá ofbeldisfullum eiginmanni eða ástarsamband utan hjónabands. Á dánarskírsteinum þessara stúlkna er dánarorsökin sögð vera örlögin. UN Women styrkir samtök í Palestínu sem vinna að lagabreytingum, samfélagslegri vitundarvakningu og starfrækir neyðarnúmer sem konur í háska geta hringt í.



Kr. 3.000






Ljósastaur í Úganda

Ljósastaur í Úganda

Glæpatíðni í stórborgum hefur stóraukist undanfarin ár og eru konur og börn sérstaklega í hættu á að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi á götum úti. Verkefni UN Women Öruggar borgir vinna á heildrænan hátt að því að minnka ofbeldi í borgum og gera þær að öruggari stöðum fyrir konur og börn. Einföld leið til þess að draga úr ofbeldi er að lýsa upp dimmar götur. Í Kampala, höfuðborg Úganda, hefur ljósastaurum verið komið upp hér og þar í borginni, m.a. í strætó biðskýlum. Þessi lýsing hefur ekki aðeins dregið úr ofbeldi gegn konum heldur einnig aukið atvinnuþátttöku kvenna þar sem konur komast til og frá vinnu óáreittar. Því getur einn ljósastaur haft gríðarleg margfeldisáhrif; öryggi kvenna eykst, hagur fjölskyldna vænkar sem og samfélagsins alls.



Kr. 5.000






Heildræn aðstoð fyrir fórnarlömb sýruárása í Kambódíu

Heildræn aðstoð fyrir fórnarlömb sýruárása í Kambódíu

Sýra er ódýrt og aðgengilegt vopn sem leggur líf þúsundir kvenna og stúlkna í rúst í Kambódíu. Algengt er að konur verði fyrir sýruárásum fyrir að óhlýðnast fjölskyldu sinni, eiga í ástarsamböndum eða sækja um skilnað frá ofbeldisfullum eiginmönnum. Sjúkrakostnaður er hár og áfallahjálp takmörkuð. Því styrkir UN Women athvarf í borginni Siem Reap fyrir fórnarlömb sýruárása. Þar er konum tryggð læknisþjónusta, sálfræðiaðstoð og jafningjastuðningur.  Þetta er fyrsta athvarfið í Kambódíu sem sér eingöngu um að taka á móti konum sem orðið hafa fyrir sýruárásum.



Kr. 10.000






Brýn aðstoð við stúlkur og einstæðar mæður í Marokkó

Brýn aðstoð við stúlkur og einstæðar mæður í Marokkó

Gróf mannréttindabrot eiga sér stað gegn fátækum stúlkum sem starfa við að þrífa heimili í Marokkó til að afla fjölskyldu sinni tekna. Rannsóknir hafa leitt í ljós að hátt hlutfall þessara stúlkna verður m.a fyrir kynferðisofbeldi af hendi vinnuveitenda sinna. Vegna bágrar félags-og lagalegrar stöðu eru stúlkur sem verða þungaðar í kjölfar nauðgunar, dæmdar til fangelsisvistar þar sem það er refsivert að eignast barn utan hjónabands. UN Women styður við verkefni INSAF í Marokkó sem vinnur að því á margþættan hátt að styrkja stöðu þessara stúlkna og kvenna með t.d. skólagöngu. Einnig beita samtökin sér fyrir því að draga þá menn til saka sem brotið hafa á stúlkum og konum í starfi sínu.



Kr. 15.000